

Viltu taka þátt í öflugri liðsheild Lyfju í Smáralind?
Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í sölu- og afgreiðslustarf. Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi og skemmtilegt starf í líflegu og faglegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á frábæra þjónustu og velferð viðskiptavina. Við bjóðum upp á samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðsla og þjónusta
- Ráðgjöf viðskiptavina um val og notkun heilsuvöru og lausasölulyfja
- Afgreiðsla við kassa
- Áfyllingar vara í verslun
- Afhending lyfseðilskyldra lyfja
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund og jákvætt viðmót
- Áhugi á heilsu og vellíðan
- Hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum
Vinnutími: Við leitum að starfsfólki í tvær stöður:
- Í afgreiðslu: alla virka daga frá kl. 13:00 til 18:00
- Í verslun: alla virka daga frá kl. 11:00 til 18:00
- möguleiki er á helgarvöktum sé áhugi fyrir því
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við sameinum fagmennsku og hlýju í þjónustu okkar og vinnum stöðugt að nýsköpun og heilsueflingu.Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir:
- jákvæðan starfsanda,
- tækifæri til að þróast í starfi,
- og getur nýtt hæfileika sína til fulls.
Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum ríka áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið og býður þar með fjölbreytt og spennandi starfsþróunartækifæri.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Torfi Pétursson, lyfsali Lyfju Smáralind í síma 530 5800 eða [email protected]Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.













