Orkuveitan
Orkuveitan
Orkuveitan

Viltu taka þátt í að koma hugbúnaðarverkefnum í þróun?

Við leitum að metnaðarfullum einstakling í fjölbreyttan hóp sérfræðinga á upplýsingatæknisviði OR samstæðunnar
Helstu viðfangsefni
Helstu viðfangsefni eru vinna í teymi með verkefnastjórum og viðskiptavinum við að móta og skrásetja hugbúnaðarkröfur, halda og stýra vinnufundum til að samræma kröfur við markmið verkefna, greina þarfir og þýða þær yfir í skýrar og framkvæmanlega kröfulýsingu ásamt því að greina hvar helstu áskoranir í verkefni liggja og minnka áhættu á innleiðingartíma.
Við metum reynslu af því að skilja þarfir viðskiptavinarinsá sviði upplýsingatækni mikils, enda felast í starfinu tækifæri til þess að taka þátt í fjölbreyttum upplýsingatækniverkefnum sem styðja bæði innri og ytri viðskipta- og þjónustuferla OR samstæðunnar til stafrænnar framtíðar. Starfið krefst útsjónarsemi, greiningarhæfni og hæfileika til þess að halda mörgum boltum á lofti.
Samstæðan samanstendur af fimm fyrirtækjum; Orkuveitu Reykjavíkur, Veitum, Orku náttúrunnar, Ljósleiðarinn og Carbfix og hefur það hlutverk að auka lífsgæði með samfélagsábyrgð að leiðarljósi. Teymi upplýsingatækni sér um innleiðingu á ýmsum hugbúnaðarlausnum fyrir samstæðuna og vinnur náið með starfsfólki OR og dótturfyrirtækja til að tryggja heildstæða og samfellda ferla á öllum sviðum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking og reynsla á að vinna með ferla við hugbúnaðargerð og innleiðingu þeirra
  • Gott vald á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli
  • Háskólapróf í tölvunarfræði, viðskiptafræði eða skyldum greinum er kostur
Auglýsing stofnuð24. nóvember 2023
Umsóknarfrestur10. desember 2023
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar