

Viltu starfa í fjölbreyttu og lifandi umhverfi?
Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að öflugum og jákvæðum einstakling í starf þjónustufulltrúa á þjónustusvið. Í boði er fjölbreytt, áhugavert og lifandi starfsumhverfi þar sem reynir á framúrskarandi samskiptahæfni, ríka þjónustulund og fagmennsku.
Þjónustufulltrúi starfar að margþættum og síbreytilegum verkefnum, bæði sjálfstætt og með öðru starfsfólki Sambandsins, sem varða starfsemi sveitarfélaga ásamt því að sinna hefðbundnum skrifstofustörfum.
- Skipulagning og undirbúningur fyrir fundi, viðburði og ráðstefnur
- Þátttaka í fundum, fundarritun og halda utan um fundargerðir
- Vinna með verkefnahópum, nefndum og stjórnum
- Samskipti við hagaðila
- Þátttaka í verkefnum á sviðinu
- Svara fyrirspurnum í þjónustugátt
- Ýmis önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Framúrskarandi skipulagshæfni
- Rík samskiptahæfni, þjónustulund, frumkvæði og samviskusemi.
- Nákvæm og áreiðanleg vinnubrögð
- Mjög gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku
- Mjög góð tölvukunnátta er skilyrði
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá Sambandinu:
-
Sambandið er framsækinn og skemmtilegur vinnustaður
-
Þátttaka í teymi sérfræðinga sem saman vinnur að eflingu íslenskra sveitarfélaga
-
Boðið er upp á opið vinnuumhverfi
-
Hér starfar samheldinn hóp og starfsfólki fær gott svigrúm til starfsþróunar.
-
Ekki skemmir fyrir að sambandið er heilsueflandi vinnustaður sem leggur áherslu á fjölskylduvænt umhverfi, boðið er upp á heilsustyrk
-
Jafnræðis skal gætt í hvívetna við ráðningu og leitast er við að mannauður sambandsins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
Íslenska
Enska










