Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Við rekum fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, þar sem við veitum samræmda þjónustu. Einnig sjáum við um sérþjónustustöðvarnar: Heimahjúkrun í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi, Geðheilsumiðstöð barna, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsuteymi HH austur, Geðheilsuteymi HH vestur, Geðheilsuteymi HH suður, Geðheilsuteymi Taugaþroskaraskanna, Geðheilsuteymi fangelsa, Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna, Samhæfingastöð krabbameinsskimanna, Upplýsingamiðstöð, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu auk stoðþjónustu á skrifstofu. Heilsuvera er samstarfsverkefni okkar og Embættis landlæknis. Þar er hægt að hafa samskipti við starfsfólk heilsugæslustöðvanna og fræðast um heilsu og áhrifaþætti hennar. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur á að skipa sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem vinnur í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði þeirra fær að njóta sín. Starfsfólk heilsugæslunnar vinnur að því að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu og víðtæku þverfaglegu samstarfi.
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Vilt þú veitaframúrskarandi þjónustu?

Heilsugæslan Miðbæ leitar að skemmtilegum, jákvæðum og lífsglöðum starfsmanni sem finnst gaman að taka á móti fólki. Um er að ræða starf í lifandi umhverfi þar sem reynir á samskiptahæfni og þjónustulund viðkomandi. Ef þér finnst gaman að tala við fólk og veita framúrskarandi þjónustu þá viljum við gjarnan fá að hitta þig.

Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
Uppgjör í lok dags
Afgreiðsla tímapantana í afgreiðslu
Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun og frágangi gagna
Aðstoða við hjúkrunarfræðinga eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
Nám sem nýtist í starfi
Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Jákvæðni og rík þjónustulund
Reynsla af móttökuritarastarfi æskileg
Reynsla af Sögukerfi kostur
Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg
Íslenskukunnátta skilyrði
Góð almenn enskukunnátta æskileg
Auglýsing stofnuð8. maí 2023
Umsóknarfrestur30. maí 2023
Starfstegund
Staðsetning
Vesturgata 7, 101 Reykjavík
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í síma
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.