
IKEA
Í dag starfa um 450 manns hjá IKEA á Íslandi, í lifandi alþjóðlegu umhverfi.
Þessi stóri samheldni hópur vinnur daglega að framgangi hugmyndafræði IKEA: „Að gera daglegt líf þægilegra fyrir sem flesta“.
Fjölbreytni er lykill að velgengni. Hjá IKEA, fögnum við öllum víddum fjölbreytileikans. Við leggjum áherslu á að skapa vinnuumhverfi þar sem öll eru velkomin, virt, studd og vel metin, sama hver þau eru eða hvaðan þau koma. Við erum fullviss um að sérstaða allra einstaklinga gerir IKEA betri.
Hér í IKEA leggjum við mikla áherslu á jákvæð samskipti á vinnustað og teljum sveigjanleika í starfi og samræmi milli vinnu og einkalífs vera mikilvægan þátt í starfsánægju.
Starfsemi fyrirtækisins býður upp á skapandi og skemmtileg störf og mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi – með jákvæðni að leiðarljósi.

Vilt þú vaxa með okkur? Fjölbreytt störf í boði!
Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að slást í fjölhæfan og fjölbreyttan hóp starfsfólks IKEA. Starfsemi fyrirtækisins býður upp á skapandi og skemmtileg störf og mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi - með jákvæðni og drifkraft að leiðarljósi. Í dag starfa um 470 manns hjá IKEA, í lifandi alþjóðlegu umhverfi. Þessi stóri samheldni hópur vinnur daglega að framgangi hugmyndafræði IKEA sem er "að gera daglegt líf þægilegra fyrir sem flest".
Hvetjum þig til að sækja um starf og við höfum samband ef starf sem hentar þinni reynslu er laust. Kynntu þér málið á vef okkar ikea.umsokn.is
Fríðindi í starfi
- Skapandi og skemmtileg störf með mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi
- Skemmtilegir samstarfsfélagar
- Niðurgreiddur heilsusamlegur matur með vegan valkosti
- Fríir ávextir og hafragrautur
- Árlegur heilsueflingarstyrkur ásamt frírri heilsufarsskoðun
- Afsláttur af IKEA vörum
- Samgöngustyrkur fyrir þá sem nýta sér vistvænan og heilsusamlegan samgöngumáta til og frá vinnu
- Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi sem stendur fyrir reglulegum viðburðum
- Aðgengi að sumarbústaði til einkanota
Hlökkum til að heyra frá þér!
Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðssvið, [email protected]
Auglýsing birt7. apríl 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Kauptún 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Part Time Sales Assistant
Sports Direct Lindum

Þjónustufulltrúi í langtímaleigudeild í Reykjavík
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Hlutastarf í þjónustudeild - ELKO Lindir
ELKO

Við leitum að þjónusturáðgjafa í Fjallabyggð
Arion banki

Þjónustufulltrúi - sumar
DHL Express Iceland ehf

FMS Grindavík - Almennt starf
FMS hf

We are hiring - Front Desk and Bellman
The Reykjavik EDITION

Söluráðgjafi hugbúnaðarlausna
Advania

Við leitum að kraftmiklum liðsfélaga á veitingastaðinn INTRO
Múlakaffi ehf

Aðstoð í mötuneyti Elkem Grundartanga- sumarafleysing
Múlakaffi ehf

Læknamóttökuritari 50% staða
Útlitslækning

Sumarstarf í þjónustuveri Hringdu!
Hringdu