Síminn
Síminn
Síminn

Viðskiptastjóri Auglýsingalausna

Síminn leitar að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við auglýsingalausnir Símans. Viðskiptastjórinn aðstoðar viðskiptavini við að hámarka árangur af birtingum auglýsinga hjá Símanum með nýtingu gagna og nýjum tæknilausnum. Starfið, sem er fyrst og fremst sölustarf, felur jafnframt í sér sölu á auglýsinglausnum Símans til auglýsenda. Við leitum að söludrifnum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti, bæði í gegnum síma og á fundum með viðskiptavinum. Þetta er einstakt tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling til að taka þátt í örum vexti Símans á auglýsingamarkaði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf til viðskiptavina
  • Sala á auglýsingalausnum Símans
  • Eftirfylgni og frágangur á sölutækifærum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af sölustörfum er æskileg
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Eiga auðvelt með símasamskipti og að halda kynningar
  • Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Frumkvæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og reglusemi
  • Eiga auðvelt með teymisvinnu
Fríðindi í starfi
  • Árlegur líkamsræktarstyrkur 
  • Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar 
  • Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða 
  • Gleraugnastyrkur 
  • Afslættir af vörum og þjónustu Símans 
  • Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu 
  • Námsstyrkir
Auglýsing birt11. október 2024
Umsóknarfrestur20. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar