Godo
Godo

Viðskiptastjóri - “Account Manager”

Við leitum að metnaðarfullum og þjónustulunduðum Viðskiptastjóra (“account manager”) til að sinna og efla samstarf við hótel og gististaði um land allt.

Hlutverkið er lykilstaða í áframhaldandi vexti Godo (Visit Group) þar sem áhersla er lögð á langtíma samstarf, verðmætasköpun og faglega ráðgjöf á sviði PMS, tekjustýringar og stafrænnar þróunar hótela.

Við bjóðum upp á skemmtilegt, metnaðarfullt og alþjóðlegt starfsumhverfi þar sem samvinna, frumkvæði og árangur eru í forgrunni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Byggja upp og viðhalda sterkum langtímasamböndum við hótel og rekstraraðila

  • Vera aðal tengiliður viðskiptavina og tryggja framúrskarandi þjónustu og eftirfylgni

  • Greina rekstur og þarfir viðskiptavina og finna tækifæri til frekari samstarfs

  • Halda regluleg árangurs- og stefnumótunarfundi með lykilviðskiptavinum

  • Tryggja ánægju í viðskiptasamböndum

  • Fylgjast með þróun í hótelrekstri, tekjustýringu og tæknilausnum

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af viðskiptastjórnun (“account management”), sölu og/eða ráðgjöf (kostur)

  • Þekking á hótelrekstri, PMS kerfum eða ferðaþjónustu (mjög mikill kostur)

  • Skipulögð vinnubrögð og góð forgangsröðun

  • Framúrskarandi íslenskukunnátta og góð enskukunnátta

  • Reynsla af CRM kerfum og gagnadrifinni vinnu

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Er þjónustulundaður, lausnamiðaður og hefur jákvætt viðmót

  • Sér tækifæri í samstarfi við viðskiptavini

  • Er sterkur í tengslamyndun og samskiptum

  • Vinnur sjálfstætt og sýnir ábyrgð

  • Hefur viðskiptavit og skilning á viðskiptamódeli SaaS lausna

  • Getur greint gögn og nýtt innsýn til að bæta árangur hótela

  • Hefur áhuga á ferðaþjónustu og rekstri hótela

Fríðindi í starfi
  • Skemmtilegt og kraftmikið starfsumhverfi í ört vaxandi alþjóðlegu fyrirtæki

  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun ferðaþjónustu á Íslandi

  • Samkeppnishæf kjör

  • Sveigjanlegt vinnuumhverfi

  • Sterkt teymi sérfræðinga á sviði hótel- og ferðatæni
Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar