Bakkinn Vöruhótel
Bakkinn Vöruhótel
Bakkinn Vöruhótel

Viðskiptastjóri

Bakkinn Vöruhótel leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf viðskiptastjóra. Starfið felur í sér ábrygð á inn- og útflæði, ásamt því að tryggja að þjónusta, gæðakröfur og verkferlar séu uppfylltir. Viðskiptastjóri stýrir svæðis- og hópstjórum og tekur þátt í stefnumótun og umbótum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tryggja skilvirkt inn- og útflæði.
  • Uppfylla þarfir viðskiptavina og sjá til þess að unnið sé eftir settum verkferlum.
  • Umsjón með starfsmannmálum og mönnun .
  • Samskipti og upplýsingaflæði til viðskiptavina.
  • Þáttaka í stefnumótun og skipulagi.
  • Innleiða umbætur sem auka skilvirkni og bæta þjónustu.
  • Vinna að því að ná settum markmiðum og lykilmælikvörðum.
  • Tryggja að öryggismál séu í samræmi við stefnu og reglur fyrirtækisins.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af stjórnun og leiðtogahæfni.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Góð færni í íslensku og/eða ensku sem tryggir skilvirk samskipti.
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.

Fríðindi í starfi:

  • Aðgangur að velferðarþjónustu Bakkans.
  • Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, Elko og Lyfju.
  • Styrkur til heilsueflingar.
  • Niðurgreiddur hádegismatur.

Næsti yfirmaður viðskiptastjóra er forstöðumaður reksturs og þjónustu.

Um Bakkann Vöruhótel:

Bakkinn er stoðfélag innan Festi samstæðunar og veitir rekstrarfélögum Festi þjónustu með vöruhýsingu og dreifingu. Bakkinn rekur tvö vel útbúin vöruhús í Klettagörðum 13 og Skarfagörðum 2 og leggur áherslu á að skapa öruggt og hvetjandi vinnuumhverfi fyrir alla starfsmenn.

Umsóknarfrestur:

Umsóknafrestur er til og með 20. janúar 2025.

Hvetjum alla áhugasama sem uppfylla ofangreindar kröfur til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veitir Sveinn Ingvi Einarsson, forstöðumaður reksturs og þjónustu, sveinn@bakkinn.is

Bakkinn Vöruhótel starfrækir vottað jafnlaunakerfi og skuldbindur sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.

Auglýsing birt10. janúar 2025
Umsóknarfrestur20. janúar 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skarfagarðar 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Leiðtogahæfni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar