
Hamar ehf
Hamar ehf er um 160 manna vinnustaður sem rekur þétt og öflugt þjónustunet um allt land á sviði málm- og véltækni. Við leggjum ríka áherslu á gæði og fagmannleg vinnubrögð með það að leiðarljósi að uppfylla ávallt kröfur og væntingar viðskiptavina okkar. Verkefni Hamars eru hin fjölbreytilegustu, allt frá grófri járnsmíði niður í hina fínustu sérsmíði.
Málmiðnaðarmenn
Við leitum eftir einstaklingum með fagmenntun og starfsreynslu á sviði málm – og/eða véltækniiðnaðar á starfsstöð fyrirtækisins á Eskifirði.
Lögð er áhersla á að ráða hæft, áhugasamt og vel þjálfað fólk sem axlar ábyrgð og sýnir frumkvæði í starfi.
Það er markmið Hamars að einstaklingar sem sinna starfinu af áhugi og nýta hæfileika sína til fulls eigi raunverulega möguleika á því að byggja sig upp í starfi innan fyrirtækisins.
Helstu verkefni Hamars:
- Heildarlausnir fyrir iðnað
- Vélaviðgerðir og vélsmíði
- Spilviðgerðir
- Vöruhönnun, -þróun og tæknileg aðstoð
- Stálsmíði úr svörtu / ryðfríu stáli og áli
- Rennismíði í sérsmíði og fjöldaframleiðslu
Menntunar og hæfniskröfur:
- Stálsmíði, vélvirkjun, rennismíði, vélfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynslumiklir einstaklingar á sviði stálsmíði og vélaviðgerða koma til greina
- Hæfni í mannlegum samskiptum og færni til að vinna vel í teymi
- Öguð vinnubrögð og gott skipulag
- Metnaður til að skila góðu starfi
- Íslenskukunnátta er skilyrði
Samkeppnishæf laun í boði.
Getum útvegað herbergi fyrir einstakling eða aðstoð við að finna leiguhúsnæði
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir: Valgeir Torfason [email protected]
Auglýsing birt19. apríl 2021
Umsóknarfrestur17. maí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Leirukrókur 3, 735 Eskifjörður
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurRennismíðiSkipulagSmíðarStálsmíðiStálsmíðiVélvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Smiður
Tækniskólinn

Tæknimaður
STOÐ

Hópstjóri á Verkstæði
Toyota

Viðhald lyftara og búnaðar í vöruhúsi
Bera hf.

Starfsmaður á hjólbarðaverkstæði á Akureyri
Dekkjahöllin ehf

Langar þig að vinna á einu flottasta bifreiðaverkstæði landsins ?
Hekla

Sviðsstjóri á Akureyri
HD ehf. Iðn- og tækniþjónusta

Rafvirkjar og vélvirkjar
Norðurál

Starfsmaður á tækjaverkstæði - Keflavíkurflugvöllur
Icelandair

Bifvélavirki - Peugeot
Peugeot á Íslandi | Brimborg

Aðstoðarmaður á pípulagningaverkstæði
Landspítali

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates