
VERKVIST
Ný og öflug verkfræði- og ráðgjafastofa. VERKVIST er sveigjanlegur, heilsueflandi og fjölskylduvænn vinnustaður þar sem virðing og skoðanafrelsi er í forgrunni. Við trúum því að hver einstaklingur eigi rétt á að þróast og vaxa í starfi, í samræmi við eigin áhuga og styrkleika. Okkar markmið er að veita umhverfi sem hvetur til þekkingarleitar, skapandi hugsunar og persónulegs vaxtar, með áherslu á andlega og líkamlega vellíðan. Við sjáum fjölbreytileika og skoðanir sem auðlind; þær eru grundvöllur fyrir nýsköpun og framfarir.
Hjá VERKVIST leggjum við ríka áherslu á vellíðan starfsfólks, góða innivist og gott vinnuumhverfi.
Við bjóðum upp á heilsueflandi vinnustað, fjölskylduvænt, sveigjanlegt, hvetjandi og jákvætt vinnuumhverfi með möguleika á fjarvinnu þar sem allir fá tækifæri til að þróast faglega og vinna í teymi.

Við erum að leita að leiðtoga í sjálfbærni og vistvottunum!
Langar þig að vera í fararbroddi í sjálfbærni og hafa raunveruleg áhrif á þróun samfélags og byggðar?
VERKVIST er sérhæfð verkfræðistofa sem þjónustar opinbera aðila, sveitarfélög og einkafyrirtæki. Við vinnum að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum þar sem sjálfbærni, fagmennska og framsækin hugsun eru í fyrirrúmi.
Í þessu hlutverki leiðir þú uppbyggingu og þróun sjálfbærniráðgjafar og vistvottana hjá VERKVIST.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða vistvottunarferli (t.d. BREEAM, Svaninn eða sambærileg kerfi)
- Veita ráðgjöf um sjálfbærnilausnir í hönnun, framkvæmd og rekstri mannvirkja
- Samskipti við verkkaupa, hönnuði og aðra hagaðila
- Móta verklag, verkfæri og stefnu á sviði sjálfbærni innan fyrirtækisins
- Taka þátt í tilboðsgerð og þróun nýrra verkefna
- Verkefnaöflun og kynningar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í verkfræði, byggingartæknifræði, umhverfisfræði eða skyldum greinum.
- Reynsla af sjálfbærni í mannvirkjagerð, vistvottunum (t.d. BREEAM, Svanurinn) eða sambærilegum verkefnum
- Þekking á byggingargeiranum og ferlum frá hönnun til framkvæmdar er kostur
- Reynsla af verkefnastjórnun og samskiptum við hagaðila
- Góð hæfni í greiningu, skipulagi og framsetningu upplýsinga
- Frumkvæði og metnaður til að byggja upp og þróa fagsvið
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Sterk samskiptahæfni og geta til að leiða samstarf
- Lausnamiðuð hugsun
- Áhugi á að vera leiðandi og hafa áhrif
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegur vinnutími og möguleiki á fjarvinnu að hluta
- Öflug tækifæri til starfsþróunar og sérhæfingar (námskeið, vottanir o.fl.)
- Aðgangur að spennandi og fjölbreyttum verkefnum með ólíkum viðskiptavinum
- Tækifæri til að taka virkan þátt í uppbyggingu og þróun fagsviða
- Samkeppnishæf laun og góð starfskjör
- Gott vinnuumhverfi og sterkt teymi fagfólks
- Jákvæð og styðjandi vinnustaðamenning
- Vinnustaður þar sem hlustað er á hugmyndir og frumkvæði
Auglýsing birt26. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar


