Stéttafélagið ehf.
Stéttafélagið ehf.
Stéttafélagið ehf.

Verkstjóri - jarðvinna og veitulagnir

Langar þig að starfa á metnaðarfullum vinnustað við krefjandi og fjölbreytt verkefni?

Stéttafélagið leitar að skipulögðum og metnaðarfullum verkstjóra í jarðvinnu- og veitulagnadeild fyrirtækisins.

Stéttafélagið er ört stækkandi og framsækið verktakafyrirtæki. Fyrirtækið starfar á sviði jarðvinnu, veitulagna, mannvirkjagerðar og lóðafrágangs.

Félagið er mjög virkt á útboðsmarkaði. Meðal verkefna eru gerð viðbygginga við skólamannvirki, endurbætur fasteigna sveitarfélaga, nýbyggingar á eigin vegum, veituverkefni fyrir ýmsar veitustofnanir, gatnagerð og lóðaframkvæmdir.

Fyrirtækið starfar á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Vegna góðrar verkefnastöðu viljum við fjölga í hópi verkstjóra félagsins.

Við bjóðum upp á gott og sveigjanlegt starfsumhverfi. Auðvelt er að þróast í starfi hjá ört vaxandi fyrirtæki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn verkstjórn
  • Mannaforráð
  • Skipulag og áætlanagerð
  • Samskipti við verkkaupa og eftirlit
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verkstjórn er skilyrði
  • Reynsla á sviði jarðvegsframkvæmda og veitulagna er mikill kostur. En reynsla af annars konar mannvirkjagerð getur einnig nýst vel í starfi
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Vinnuvéla- og meiraprófsréttindi eru kostur
Auglýsing birt18. janúar 2026
Umsóknarfrestur28. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ýmsir verkstaðir á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni
Borgahella 9, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar