

Verkstjóri í áhaldahús Borgarbyggðar
Borgarbyggð óskar eftir að ráða verkstjóra í áhaldahús í 100% starf.
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli. Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Í starfsmannamálum eru gildin virðing, áreiðanleiki og metnaður höfð að leiðarljósi.
Starf verkstjóra áhaldahús Borgarbyggðar er laust til umsóknar. Starfið felst í umsjón og vinnu við ýmsar verklegar framkvæmdir, frá- og vatnsveitur, umhirða þéttbýliskjarna og opinna svæða og gatnakerfi. Starfið er fjölbreytt og krefst mikilla samskipta við íbúa sveitarfélagsins.
Næsti yfirmaður er deildarstjóri umhverfis- og landbúnaðarmála. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og búsettur á svæðinu.
- Umhirða og viðhald eigna sveitarfélagsins sem falla undir áhaldahús
- Verklegar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins sem fellur undir starfssvið áhaldahús
- Viðhald og hreinsun gatna, gangstétta, stíga og veitna
- Snjómokstur, sláttur, umhirða opinna svæða o.fl. tilfallandi
- Iðnmenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Vinnuvélaréttindi / meirapróf / ökuréttindi skilyrði
- Frumkvæði, sjálfstæði, fagmennska, skipulagshæfni, nákvæmni og styrk til ákvarðanatöku
- Reynsla af verkstýringu verkamanna
- Áhugi til að taka þátt í teymisstarfi og umbótaverkefnum
- Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
- Hreint sakavottorð
- Gott vald á íslensku í ræði og riti
- Afsláttur af árskorti í íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar
- Afsláttur hjá Símanum
- Afsláttur á bókasafninu




















