
GG Verk ehf
18 ára byggingafyrirtæki sem setur fólk í fyrsta sæti.
Hlutverk GG Verk er að byggja vönduð mannvirki sem byggð eru innan tilskilins tímaramma - af framúrskarandi fagmennsku og umhyggju fyrir fólki og umhverfi.
Við setjum fólk ávallt í fyrsta sæti og sýnum ábyrgð með því að lágmarka sóun í þágu umhverfisins og viðskiptavina. Við tryggjum áreiðanleika með fyrirhyggju og fyrirbyggjandi lausnum.
GG Verk er lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem ríkir góður starfsandi og sterk liðsheild. Hjá okkur starfa um 120 sérfræðingar í mannvirkjagerð, hver á sínu sviði, sem vilja bjóða nýjum snillingum velkomin í okkar öfluga teymi. Við hvetjum því einstaklinga af öllum kynjum til þess að sækja um.
GG Verk hlaut ISO 9001:2008 gæðavottun í nóvember 2015 og endurnýjaði svo vottunina og hlaut um leið uppfærslu í ISO 9001:2015 í október 2017. Gæðakerfið er svo tekið út og endurnýjað árlega af ytri vottunaraðilum. GG Verk er jafnframt með jafnlaunavottun.
Við erum stolt af því að hafa hlotið viðurkenningar og vottanir fyrir að vera Framúrskarandi fyrirtæki frá Credit Info og Fyrirmyndarfyrirtæki frá Viðskiptablaðinu ásamt því að hafa hlotið viðurkenninguna Jafnvægisvogina frá FKA á árinu 2020 enda trúum við því að jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja skili bestum árangri.

Verkstjóri byggingaframkvæmda
Vegna traustrar verkefnastöðu óskum við eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi verkstjóra.
Reynsla af innanhússfrágangi mikill kostur.
Leitað er að áreiðanlegum, metnaðarfullum og drífandi einstaklingi sem setur fólk í fyrsta sæti og sýnir auk þess fyrirhyggju og ábyrgð í verki.
Hjá okkur starfa verkstjórar við að stýra framleiðslu stærri mannvirkja og bera bæði lagalegar skyldur og mikla ábyrgð í starfi. Um er að ræða mjög yfirgripsmikil og fjölbreytt verkefni.
Í fyrirtækinu starfa um 120 manns en við leggjum mikið upp úr því að laða til okkar fólk sem vill vaxa í starfi, vinnur sjálfstætt, hefur góða tækni- og fagþekkingu, er árangursdrifið en umfram allt setur fólk í fyrsta sæti.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hægri hönd verkefnastjóra við rekstur verkefnis
- Undirbúningur, skipulag og stýring byggingaframkvæmda
- Rýni teikninga og skipulag vinnusvæðis
- Innri gæða- og öryggisúttektir
- Dagskýrslugerð og frábrigðaskráning
- Umsjón með aðstöðu og vélabúnaði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af húsasmíði og verkstýringu stærri mannvirkja
- Meistarapróf eða sveinspróf í húsasmíði
- Leiðtogahæfni í mannauðs, gæða og öryggismálum
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Rík öryggisvitund
- Tækni- og tölvufærni
- Góð enskukunnátta
- Hreint sakarvottorð er skilyrði
Fríðindi í starfi
- Ýmis afsláttarkjör starfsfólks félagsins
- Árlegur heilsueflingarstyrkur
- Vinnubifreið til afnota og bensínstyrkur
- Greiddur símareikningur
Auglýsing birt22. apríl 2025
Umsóknarfrestur7. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Turnahvarf 4, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
HeiðarleikiHreint sakavottorðHúsasmíðiJákvæðniMannleg samskiptiÖkuréttindiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSmíðarTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkstjóri
Ístak hf

Verkefnastjóri viðhalds í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar
Kópavogsbær

Yfirverkstjóri á Selfossi
Vegagerðin

Eftirlitsmaður á umsjónardeild Austursvæðis
Vegagerðin

Verkstæði, Powder Coating, lampasmiðja
Flúrlampar ehf / lampar.is

Fjölbreytt sumarstarf í heildverslun
Ísól ehf

Gatna og bílastæða málari - Parking lot painter
BS Verktakar

Múrari með reynslu / Mason with experience
Einingaverksmiðjan

Experienced construction worker - Byggingastarfsmaður
Einingaverksmiðjan

Verkefnastjóri - Reyðarfjörður
VHE

Starfsmaður í skiltagerð - Vanir og óvanir
Velmerkt ehf

Smiðir / Carpenters
Atlas Verktakar ehf