
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 350 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Verkstjóri á þjónustustöð í Fellabæ
Starf verkstjóra við þjónustustöðina í Fellabæ er laust til umsóknar. Þjónustustöð sér um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á svæðinu. Verkstjóri hefur umsjón og eftirlit með verkefnum á þjónustustöðinni og sér til þess að þau séu unnin í samræmi við áætlanir og öryggisstefnu Vegagerðarinnar. Verkstjóri er staðgengill yfirverkstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn þjónusta, eftirlit og verkstjórn í viðhaldi vega og vegbúnaðar á svæði þjónustustöðvarinnar.
- Eftirlit í vetrarþjónustu með færð á vegum, upplýsingagjöf og stjórnun snjómoksturs í samvinnu við yfirverkstjóra og vaktstöð Vegagerðarinnar.
- Vinnur bakvaktir í vetrarþjónustu utan dagvinnutíma frá október- apríl og er aðgengilegur ef þörf skapast, s.s. vegna veðurs, náttúruhamfara og slysa.
- Samskipti og eftirlit með verktökum.
- Gætir að öryggi starfsfólks þjónustustöðvar og vegfarenda á vinnusvæðum og fylgir öryggisreglum þar að lútandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Almennt grunnnám, iðnmenntun æskileg
- Reynsla af stjórnun æskileg
- Verkstjórnarnámskeið eða sambærilegt er æskilegt
- Meirapróf og/eða vinnuvélaréttindi æskilegt
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi
- Góð íslenskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
- Góð öryggisvitund
Auglýsing birt8. apríl 2025
Umsóknarfrestur28. apríl 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Smiðjuseli 1, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Yfirverkstjóri í vélsmiðju
Ístak hf

Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar – Umhverfis- og skipulagssvið
Hafnarfjarðarbær

Flokkstjóri við Vinnuskóla
Sumarstörf - Kópavogsbær

Smiður/verkstjóri
Rými

Flokkstjóri í Þjónustumiðstöð
Sumarstörf - Kópavogsbær

Verkstjóri í fjölbreyttum viðhaldsverkefnum
HH hús

HH hús óskar eftir að ráða Smiði til starfa
HH hús

Framleiðsla og flotastýring
Steinsteypan

Sláttumenn / Garðyrkja / Hópstjórar - Sumarstarf
Garðlist ehf

Verkstjóri Meindýraeftirlits
Varnir og Eftirlit

Akureyri: Verkstjóri timbursölu
Húsasmiðjan

Verkefnastjóri DNG Færavinda
Slippurinn Akureyri ehf