
ÍAV
ÍAV - Íslenskir aðalverktakar hf. voru stofnaðir 31. maí 1997 með yfirtöku ákveðinna eigna og skuldbindinga, ásamt öllum verksamningum Íslenskra aðalverktaka sf. sem þá höfðu starfað sem verktakar á varnarsvæðum hérlendis allt frá 1954.
Frá þeim tíma til dagsins í dag hafa orðið verulegar breytingar á rekstri og stjórnskipulagi félagsins en félagið stefnir markvisst að því að vera alhliða fyrirtæki á öllum sviðum mannvirkjagerðar bæði hvað varðar nýsköpun, fjármögnun og framkvæmdir.
ÍAV er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki landsins og er félagið öflugur þátttakandi á öllum sviðum byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, opinberar byggingar, jarðgangagerðar, jarðvinnu eða gatnagerð.
ÍAV hf er nú alfarið í eigu Marti Holding AG frá Sviss sem var stofnað 1922. Marti Holding á um 80 fyrirtæki víðsvegar um heim sem eru öll rekin sem sjálfstæðar einingar.

Verkstjóri
ÍAV óskar eftir að ráða verkstjóra til starfa hjá félaginu í Búnaðardeild á Reykjanesi. Fjölbreytt verkefni í boði og góð verkefnastaða. Um er að ræða fullt starf fyrir rétta aðila.
ÍAV leggur mikið upp úr góðri mætingu og reglusemi.
ÍAV er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki landsins og er félagið öflugur þátttakandi á öllum sviðum byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði eða opinberar byggingar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkstjórn
- Stjórnun mannskaps
- Samskipti við aðrar deildir innan ÍAV
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla og kunnátta í húsasmíði kostur
- Reglusemi og stundvísi
- Tungumál
- Íslenska skilyrði
- Enska kostur
Auglýsing stofnuð14. nóvember 2023
Umsóknarfrestur4. desember 2023
Starfstegund
Staðsetning
Ferjutröð 2060-2064 2060R, 235 Reykjanesbær
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)