

Verkfræðingur í vöruþróun
Verkfræðingur í vöruþróun
Verkfræðingur í vöruþróun hjá Kerecis er hluti af reyndu teymi sérfræðinga í lækningatækjum sem bera ábyrgð á að þróa og koma á markað næstu kynslóð lækningartækja til meðferðar á mismunandi tegundum sára. Starfsmaðurinn mun starfa á skrifstofu Kerecis í Reykjavík.
Hefur þú roð við okkur?
Kerecis er það fyrirtæki sem vex hraðast í heiminum á sviði meðferðar á vefjaskaða og byggir tækni sína á hagnýtingu á roði og fitusýrum. Lækningavörur Kerecis eru notaðar til meðhöndlunar á margskonar líkamsskaða; m.a. á skurðsárum, þrálátum sárum, brunasárum, munnholssárum sem og til að flýta fyrir gróanda og að styrkja innvortis vef eftir skurðaðgerðir og slys.
Um 600 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu á Ísafirði, í Reykjavík, Þýskalandi og í Bandaríkjunum.
Sáraroðið Kerecis á þátt í bata þúsunda einstaklinga um allan heim árlega.
- Þróa nýjar vörur og tækni fyrir Kerecis.
- Sannreyna og skjalfesta að vörurnar uppfylli öll skilyrði lækningatækja samkvæmt gæðakerfi Kerecis.
- Taka þátt í hugmyndavinnu, rannsóknum og nýsköpunarvinnu.
- B.Sc. eða M.Sc í verkfræði, nátturvísindum eða sambærilegu fagi.
- Æskilegt að viðkomandi sé með a.m.k. 3 ára reynslu í vöruþróun á lækningatækjum.
- Áhugi á vöruþróun, tækninýjungum, og vefja- og frumulíffræði.
- Reynsla af notkun CAD hugbúnaðar, helst SolidWorks.
- Skipulag, frumkvæði, drifkraftur og góð samskiptahæfni.













