Thor landeldi
Thor landeldi
Thor landeldi

Verkefnastjóri tækni og þróunar

Thor landeldi leitar að öflugum og lausnamiðuðum verkefnastjóra tækni og þróunar til að leiða undirbúning og tæknilega þróun nýrrar framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins. Starfið spannar allt ferlið frá hugmyndavinnu og skipulagningu til hönnunar, útboða, framkvæmda, innleiðingar tæknibúnaðar og viðhald eldiskerfa. Aðili vinnur náið með verkefnastjóra framkvæmda og öðrum stjórnendum fyrirtækisins við að tryggja að uppbygging styðji við öruggan, hagkvæman og sjálfbæran rekstur til framtíðar.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir einstakling sem vill hafa raunveruleg áhrif á uppbyggingu á stóru og metnaðarfullu landeldisverkefni á Íslandi og fylgja verkefnum frá fyrstu hugmynd að fullbúinni framleiðsluaðstöðu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í mótun skipulags mannvirkja, framleiðslu- og tæknikerfa
  • Samræma hönnun með ráðgjöfum og verktökum
  • Undirbúningur og framkvæmd útboða ásamt samningagerð
  • Stýra  gangsetningu búnaðar
  • Byggja upp viðhaldsáætlanir og styðja við öruggan rekstur eldiskerfa
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að reynslumiklum einstaklingi með menntun sem nýtist í starfi, hefur drifkraft til að koma hlutum í framkvæmd, vinnur skipulega og á auðvelt með að byggja upp traust samstarf. Viðkomandi er lausnamiðaður, tekur frumkvæði og nýtur þess að vinna í fjölbreyttu verkefnaumhverfi þar sem margar ólíkar faggreinar koma saman.

Auglýsing birt17. júlí 2026
Umsóknarfrestur26. júlí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Laxabraut 5, 815 Þorlákshöfn
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar