Verkefnastjóri Sjálfbærniverkefnis Alcoa og Landsvirkjunar
Ert þú skapandi, sjálfstæður og lausnamiðaður verkefnastjóri? Hefur þú þekkingu á gagnavinnslu og miðlun þekkingar? Viltu taka að þér áhugavert og mikilvægt verkefni í eitt ár?
Austurbrú auglýsir stöðu verkefnastjóra Sjálfbærniverkefnis Landsvirkjunar og Alcoa Fjarðaáls.
Um er að ræða starf til eins árs með möguleika á framhaldi. Viðfangsefni verkefnastjóra er samantekt og uppgjör á stöðu Sjálfbærniverkefnisins sem safnað hefur skilgreindum mælingum í tæp 20 ár.
Um er að ræða verkefni sem krefst haldbærrar reynslu og þekkingar af gagnavinnslu og leikni í að setja fram niðurstöður. Tengja þarf saman þær upplýsingar sem verkefnið hefur safnað, miðla niðurstöðum á fjölbreyttan máta og endurspegla verkefnið og niðurstöður þess í stærra samhengi.
Verkefnið felur í sér töluverð samskipti við einstaklinga, fyrirtæki og aðra hagaðila. Við leitum því að samskiptafærum verkefnastjóra sem er nákvæmur og forvitinn varðandi sögu þeirra gagna sem unnið er með og býr yfir hæfni til að miðla og leita álits og endurgjafar á það sem gögnin sýna.
Um er að ræða 80-100% stöðu en í boði er einnig að taka þátt í tilfallandi rannsóknar og greiningarverkefnum rannsóknarteymis Austurbrúar s.s. Horizon2020-verkefnum og greiningarþjónustu fyrir samstarfsaðila.
Ef þú ert flinkur í Excel og lýsandi tölfræðivinnslu, skapandi, lausnamiðaður og skipulagður og átt auðvelt með að skapa tengsl og eiga í samskiptum við ólíka aðila viljum við gjarnan fá umsókn frá þér.
- Uppgjör, úrvinnsla og miðlun gagna Sjálfbærniverkefnisins.
- Samskipti við hagaðila, viðskiptavini og stofnanir.
- Miðlun upplýsinga.
- Þátttaka í teymisvinnu rannsókna og greiningarmála.
- Öflun nýrra verkefna og gerð umsókna.
- Önnur verkefni sem viðkomandi eru falið.
- Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi (s.s. á sviði tölfræði og aðferða, miðlunar eða upplýsingatækni).
- Reynsla af miðlun þekkingar og upplýsinga.
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun.
- Mikil hæfni í samskiptum og reynsla af teymisvinnu æskileg.
- Sjálfstæð, nákvæm og öguð vinnubrögð.
- Þekking á samfélagi og atvinnulífi svæðisins er kostur.
- Skilyrði er mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði rituð og töluð.
- Mjög góð tölvu- og tæknifærni (t.d. Excel, samfélagsmiðlar, vefsíður)
- Framsýni, jákvæðni og sveigjanleiki.
- Sveigjanlegur vinnutími
- Heimavinnudagar
- Heilsustyrkur