Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélagið Hornafjörður

Verkefnastjóri markaðsmála og viðburða

Menningarmiðstöðin auglýsir eftir hugmyndaríkum, skapandi og skipulögðum einstaklingi til liðs við þverfaglegt teymi sitt.

Verkefnastjóri markaðsmála og viðburða er nýtt starf hjá sveitarfélaginu og mun þróast með nýjum starfsmanni. Helstu verkefni eru innra og ytra markaðsstarf sveitarfélagsins og viðburðahald. Verkefnastjóri hefur aðsetur í Gömlubúð og sinnir starfsemi hússins, sem enn er í mótun, ásamt verkefnastjóra ferðamála.

Um fullt starf er að ræða en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til 8. apríl 2025.

Umsóknir eiga að berast í tölvupósti á [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg umsjón Gömlubúðar og gesta hennar
  • Innra og ytra markaðsstarf sveitarfélagsins
  • Umsjón með miðlum sveitarfélagsins
  • Viðburðahald sveitarfélagsins
  • Viðburðadagatal sveitarfélagsins
  • Frumkvæði að viðburðahaldi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 
  • Mótun og þátttaka í barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar
  • Önnur verkefni sem viðkomandi er falið
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærilegt
  • Þekking og reynsla sem nýtist í starfi
  • Háskólanám sem nýtist í starfi er kostur
  • Sjálfstæði, vönduð vinnubrögð og tölvukunnátta
  • Góðir skipulagshæfileikar og lipurð í samskiptum
  • Góð tök á íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
Auglýsing birt21. mars 2025
Umsóknarfrestur8. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Heppuvegur 1, 780 Höfn í Hornafirði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar