Markaðsstofa Norðurlands
Markaðsstofa Norðurlands

VERKEFNASTJÓRI MARKAÐSMÁLA OG MIÐLUNAR

Markaðsstofa Norðurlands leitar að drífandi og skipulagðri markaðsmanneskju í starf verkefnastjóra markaðsmála og miðlunar.

Starfið krefst ferðalaga, sjálfstæðra vinnubragða og sveigjanlegs vinnutíma.

Verkefnastjóri vinnur í nánu samstarfi við ferðaþjónustuaðila og sveitarfélög á öllu Norðurlandi að þróun og uppbyggingu áfangastaðarins og þarf að hafa brennandi áhuga og góða þekkingu á markaðsmálum og mikla þjónustulund.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og þátttaka í markaðs- og kynningarmálum
  • Ábyrgð og framkvæmd markvissrar stafrænnar miðlunar, m.a. í gegnum vef- og samfélagsmiðla
  • Miðlun upplýsinga og samskipti við hagsmunaaðila
  • Vinna í almannatengslum með áherslu á erlenda markaði
  • Greining markaðsgagna og eftirfylgni
  • Stuðningur og leiðsögn til fyrirtækja og sveitarfélaga
  • Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum vinnustaðarins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði markaðsmála eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla og þekking á markaðsmálum og miðlun
  • Reynsla af greiningum, áætlanagerð og eftirfylgni
  • Góð þekking á vefumsjón, samfélagsmiðlum og stafrænni markaðssetningu
  • Þekking á ferðaþjónustu er kostur
  • Rík hæfni í samskiptum og samstarfi
  • Hugmyndauðgi og drifkraftur
  • Frumkvæði og sjálfstæði auk nákvæmni í vinnubrögðum
  • Góð almenn tölvufærni og hæfni/vilji til að tileinka sér nýjungar
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tryggvabraut 10, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar