

Verkefnastjóri markaðs- og áfangastaðaþróunar
Markaðsstofa Norðurlands leitar að drífandi og skipulagðri markaðsmanneskju í starf verkefnastjóra markaðs- og áfangastaðaþróunar.
Verkefnastjóri vinnur í nánu samstarfi við ferðaþjónustuaðila og sveitarfélög á öllu Norðurlandi að þróun og markaðssetningu áfangastaðarins og þarf að hafa brennandi áhuga og góða þekkingu á markaðsmálum og ferðaþjónustu.
Áfangastaðaáætlun
Hugmyndavinna og stefnumótun markaðsverkefna
Sjálfbær ferðaþjónusta
Úrvinnsla og framsetning gagna
Almenn markaðssetning
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Þekking á markaðsmálum er nauðsyn
Þekking á verkefnastjórnun, stefnumótun, framsetningu og greiningu gagna
Þekking á Norðurlandi og reynsla af ferðaþjónustu
Góð samskiptahæfni og skipuleg vinnubrögð
Starfið krefst ferðalaga, sjálfstæðra vinnubragða og sveigjanlegs vinnutíma
Íslenska
Enska










