Samherji Fiskeldi
Samherji Fiskeldi
Samherji Fiskeldi

Verkefnastjóri mannvirkja

Við leitum að öflugum og skipulögðum einstaklingi í starf verkefnastjóra á sviði mannvirkja. Viðkomandi ber ábyrgð á gerð og stýringu verksamninga innan mannvirkjagerðar og uppbyggingar. Verkefnastjóri tryggir að samningar séu gerðir í samræmi við lagalegar kröfur, aðferðarfræði og stefnu fyrirtækisins.

Verkefnastjóri verksamninga fylgir því eftir að samningar uppfylli öryggis- og gæðakröfur, kostnaðar- og tímaáætlanir. Þetta felur í sér að vinna nána samvinnu með verkefnastjóra, hönnunarstjóra, verkfræðingum og öðrum lykilstjórnendum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning og framkvæmd mannvirkjaverkefna, þar með talið áætlunargerð, kostnaðareftirlit og tímasetningar.
  • Samhæfing við alla samstarfsaðila, þar á meðal verktaka, ráðgjafa og hönnunarteymi.
  • Eftirlit með gæðum og samræmi framkvæmda við hönnunarforsendur og reglugerðir.
  • Úrvinnsla og úrlausn tæknilegra og verklegra vandamála sem koma upp í framkvæmdarferlinu.
  • Greining áhættuþátta og mótun aðgerðaáætlana til að lágmarka áhættu.
  • Umsjón með útboðum og mati á tilboðum frá verktökum og birgjum.
  • Reglubundin skýrslugjöf um framvindu, frávik og gæðamál til stjórnenda.
  • Samskipti við eftirlitsaðila og stjórnvöld til að tryggja að framkvæmd sé í samræmi við lög og reglur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í byggingarverkfræði, mannvirkjagerð eða skyldum greinum, sem nýtist í starfi.
  • Haldbær reynsla af stjórnun umfangsmikilla byggingaverkefna.
  • Góð þekking á byggingarreglugerðum og regluverki.
  • Reynsla af útboðs- og samningagerð.
  • Færni til að vinna sjálfstætt og í teymi undir álagi.
  • Skipulagshæfni og geta til að stýra mörgum verkþáttum samtímis.
  • Framúrskarandi leiðtogafærni, samskiptahæfni og færni í að leysa ágreiningsmál.
Auglýsing birt8. október 2024
Umsóknarfrestur21. október 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Auðlindagarðurinn
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar