Fræðslusetrið Starfsmennt
Fræðslusetrið Starfsmennt

Verkefnastjóri kynningarmála

Fræðslusetrið Starfsmennt leitar að öflugum starfsmanni til að leiða og vinna að verkefnum á sviði kynningarmála, fullorðinsfræðslu og náms til að efla hæfni opinberra starfsmanna. Starfsmennt á í samskiptum við marga hagsmunaaðila svo leitað er að einstaklingi sem er flinkur í samskiptum, getur sýnt frumkvæði að úrlausnum verkefna, unnið sjálfstætt en jafnframt verið góður liðsmaður í teymisvinnu.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á svið kennslu, ráðgjafar, miðlunar, markaðsfræði og/eða upplýsingatækni
Starfsreynsla úr svipuðum störfum
Þekking á fullorðinsfræðslu og íslenskum vinnumarkaði er kostur
Mjög góð tölvukunnátta, þekking á vefvinnslu og miðlunar efnis á rafrænan máta
Mjög gott vald á íslensku og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Gott vald á ensku, önnur erlend tungumál eru kostur
Nákvæmni, sjálfstæði, frumkvæði og geta til að fylgja verkefnum eftir
Mjög góð samstarfs- og samskiptahæfni
Helstu verkefni og ábyrgð
Kynningarstarf og yfirumsjón með heimasíðu, útgáfu vef fréttabréfs og samfélagsmiðlum
Upplýsingagjöf og samskipti við þátttakendur, stofnanir og hagsmunaaðila
Umsjón með vefkerfi og rafrænni skráningu á námsvef
Þátttaka í þróun námsframboðs
Önnur tilfallandi verkefni
Auglýsing birt25. nóvember 2021
Umsóknarfrestur13. desember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skipholt 50B, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar