Verkefnastjóri í sumarstarf
Olíudreifing leitar að öflugum verkefnastjóra í sumarafleysinug við skipulagningu á dreifingu á fljótandi eldsneyti.
Starfssvið:
· Skipulagning dreifingar á eldsneyti
· Móttaka og úrvinnsla pantana
· Verkstjórn
· Samskipti við viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Stúdentspróf eða sambærilegt
· Rík öryggisvitund, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
· Sjálfstæð vinnubrögð
· Reynsla af akstri stórra bíla kostur
· Góð almenn tölvuþekking
· Stundvísi
· Geta átt samskipti á ensku
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helgi Marcher Egonsson, helgim@odr.is
Meginstarfsemi Olíudreifingar er dreifing og birgðahald á fljótandi eldsneyti. Olíudreifing rekur einnig bifreiða-, járnsmíða-, dælu- og rafmagnsverkstæði. Starfsmenn félagsins eru um 130 talsins á starfsstöðvum víðsvegar um landið. Starfað er samkvæmt gæðavottuðum vinnuferlum. Nánari upplýsingar um Olíudreifingu ehf. má nálgast á www.oliudreifing.is