Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður

Verkefnastjóri í stuðnings- og stoðþjónustu

Velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar auglýsir lausa til umsóknar 100% tímabundna stöðu verkefnastjóra í stuðnings- og stoðþjónustu. Um er ræða ráðningu til eins árs.

Starfið felur í sér m.a. að verkstýra og leiðbeina starfsfólki sem starfar við að veita stuðnings- og stoðþjónustu (heimaþjónustu). Einnig að samræma vinnu starfsfólks og úthluta verkefnum.

Auglýst er eftir þroskaþjálfa, iðjuþjálfa eða öðrum fagaðila með háskólamenntun í félags- eða heilbrigðisvísindum sem nýtist í starfi. Um er að ræða 100% starf á skrifstofu velferðar- og mannréttindasviðs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkstýring, leiðbeiningar og stuðningur við starfsfólk sem starfar við að veita einstaklingum stuðnings- og stoðþjónustu.
  • Samræma vinnu starfsfólks og úthluta verkefnum.
  • Samskipti við notendur þjónustunnar, aðstandendur þeirra og aðra aðila sem koma að þjónustu við fullorðið fólk.
  • Utanumhald um akstursþjónustu, heimsendan mat og önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Krafa er að umsækjandi hafi lokið háskólamenntun í þroska- eða iðjuþjálfafræðum, eða annarri háskólamenntun á sviði félags- eða heilbrigðisvísinda sem nýtist í starfi.
  • Þekking á þjónustu við eldra fólk og fullorðna fatlaða.
  • Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum.
  • Að virðing sé höfð að leiðarljósi í samskiptum við þjónustuþega, aðstandendur og samstarfsfélaga.
  • Þekking á lagaumhverfi og stjórnsýslu sveitarfélaga er kostur.
  • íslenskukunnátta (B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.
Auglýsing birt8. desember 2025
Umsóknarfrestur17. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalbraut 4, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.RáðningarPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StarfsmannahaldPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VaktaskipulagPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar