Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Verkefnastjóri í opinberum innkaupum

Vegagerðin auglýsir eftir öflugum verkefnastjóra fyrir þjónustukaup og rekstur vegakerfis. Verkefnastjórinn vinnur náið með fjármáladeild og rekstrardeild við skipulag og framkvæmd þjónustukaupa og stuðlar að sjálfbærum og vistvænum innkaupaferlum í samræmi við stefnu Vegagerðarinnar.


Starfið fellur undir stoðdeild sem er deild innan mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar og starfa þar nú 16 manns. Verkefni deildarinnar eru víðfeðm, þvert á deildir og svið Vegagerðarinnar. Auk þess að bera ábyrgð á þjónustuinnkaupum Vegagerðarinnar hefur stoðdeild m.a. umsjón með gerð leiðbeininga fyrir útboðs- og verklýsingar, umsjón og gerð reglna og handbóka um framkvæmdir og viðhald, verkefnisstjórnun á viðhaldi og styrkingu bundinna slitlaga, umsjón og framkvæmd jarðefna-, jarðfræði- og jarðtæknirannsókna, umsjón með rekstri tækja til gangaöflunar, mælinga og úrvinnslu mælinga á láði og legi. Stoðdeild heldur einnig utan um útboðskerfi Vegagerðarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf verkefnastjóra á stoðdeild felst í umsjón með útboðum fyrir þjónustukaup fyrir rekstur vegakerfis í samráði við forstöðumann. 

  • Hefur heildaryfirsýn yfir útboð á málaflokknum og tryggir að innkaup og útboð fylgi verkferlum og eru í samræmi við lög og reglur. 
  • Framkvæmir þarfagreiningu og hefur umsjón með innleiðingu nýrra innkaupaleiða, s.s. rammasamninga og annarra lausna, í stað hefðbundinna útboða.  
  • Veitir ráðgjöf og stuðning varðandi þjónustukaup fyrir rekstur vegakerfisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, meistarapróf æskilegt
  • Marktæk reynsla og haldbær þekking á opinberum innkaupum og útboðsgerð skilyrði
  • Reynsla af umbóta- og gæðamálum æskileg
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
  • Reynsla af teymisvinnu og góð hæfni  til að vinna sjálfstætt skilyrði
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
  • Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni.
  • Góð öryggisvitund
Auglýsing birt2. október 2024
Umsóknarfrestur14. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar