Mímir-símenntun
Mímir-símenntun
Mímir-símenntun

Verkefnastjóri í fræðslu og þróun

Hefur þú brennandi áhuga á menntun og vilt hafa jákvæð áhrif á líf nemenda? Þrífst þú vel í síbreytilegu vinnuumhverfi? Ef svarið er já þá erum við með spennandi starf fyrir þig!

Við erum að leita að hæfileikaríkum og metnaðarfullum verkefnastjórum í stækkandi teymið okkar. Verkefnin eru fjölbreytt og snúa að skipulagningu og þróun námskeiða í íslensku sem öðru máli, sem og á sviði framhaldsfræðslu.

Mímir er leiðandi símenntunarmiðstöð sem veitir gæðamenntun fyrir fjölbreyttan nemendahóp. Sem verkefnastjóri munt þú taka þátt í að skapa námstækifæri og þróa árangursríkt námsumhverfi fyrir fullorðna námsmenn. Þú munt fá tækifæri til að vinna að fjölbreyttum verkefnum sem miða að því að hámarka jákvæða upplifun nemenda okkar af námi.

Öll starfsemi Mímis byggir á teymishugsun þar sem samvinna, fagmennska og framsækni í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Við hvetjum öll til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastjórn námskeiða, námsbrauta, prófahalds og annarra verkefna í samræmi við gæðakerfi Mímis. 
  • Þarfagreining og þróun nýrra námskeiða, m.a. í samstarfi við atvinnulífið. 
  • Nýsköpun og framþróun í námi og kennslu. 
  • Þátttaka í teymisvinnu og þróunarverkefnum. 
  • Kynningar á fræðsluframboði Mímis. 
  • Önnur tilfallandi verkefni. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á háskólastigi og starfsreynsla sem nýtist í starfi, kennaramenntun er kostur. 
  • Góð íslensku- (B1<) og enskukunnátta, önnur tungumálakunnátta kostur.  
  • Skipulagshæfni, nýsköpunarhugsun, sjálfstæði og sveigjanleiki. 
  • Góð færni í samskiptum, menningarnæmni og geta til að leiða og taka þátt í teymisvinnu. 
  • Þekking á framhaldsfræðslukerfinu, ÍSAT og/eða starfi símenntunarmiðstöðva er kostur. 
  • Góð færni til að nota hugbúnað og tileinka sér tækninýjungar. 
  • Drifkraftur og frumkvæði í starfi. 
Fríðindi í starfi

Við bjóðum upp á góða vinnustaðamenningu, starfsaðstöðu, fjarvinnustefnu, símenntunarstefnu og stuðning við hreyfingu. Komdu og vertu hluti af teyminu okkar! 

Auglýsing stofnuð3. júlí 2024
Umsóknarfrestur5. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Framkoma/FyrirlestarPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar