Kambar Byggingavörur ehf
Kambar eru ein sterk heild, sameinuð úr fjórum rótgrónum íslenskum framleiðslu-fyrirtækjum. Í sameiningu myndum við einn stærsta framleiðanda landsins á gluggum, hurðum, gleri og svalahandriðum fyrir íslenskar aðstæður.
Við búum yfir framúrskarandi íslensku hugviti og höfum áratugalanga reynslu af því að framleiða gæðavörur sem standast kröfuharðar íslenskar aðstæður. Sú þekking og handverk má ekki tapast úr íslenskum iðnaði.
Kambar leggja alla áherslu á að halda þessari ómetanlegu íslensku sérfræðiþekkingu innan landsteinanna. Þannig sköpum við störf, höldum virðisaukningunni innanlands og tryggjum að við getum áfram brugðist hratt við og átt í mjög góðu samtali við viðskiptavininn. Því á endanum snýst þetta allt um hann. Viðskiptavinurinn á skilið að geta valið íslenskar gæðavörur sem framleiddar eru með íslenskar aðstæður í huga.
Verkefnastjóri glerkerfi
Kambar óskar eftir að ráða öflugan verkefnastjóra fyrir glerkerfi Kamba.
Um er að ræða tæknimannsstarf sem krefst mikilla samskipta við sölumenn, viðskiptavini og birgja, bæði erlenda og innlenda.
Vinnutími er:
Mánudaga til föstudaga 8-17
Föstudaga 8-16
Helstu verkefni og ábyrgð
· Hanna og teikna tilboð í álkerfi samkvæmt tilboðsbeiðnum.
· Panta inn hráefni fyrir seldar lausnir
· Útbúa framleiðsluteikningar
· Þátttaka í vöruþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
· Háskóla- eða tæknimenntun sem nýtist í starfi
· Framúrskarandi tölvukunnátta
· Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
· Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
· Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Auglýsing birt11. október 2024
Umsóknarfrestur31. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
EnskaMjög góð
Staðsetning
Smiðjuvegur 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Fljót/ur að læraHúsasmíðiMannleg samskiptiSamskipti með tölvupóstiStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)