

Verkefnastjóri fræðslu og miðlunar
Sláturhúsið menningarmiðstöð auglýsir eftir starfsmanni í nýja stöðu verkefnastjóra fræðslu og miðlunar. Starfshlutfall er 50% Starfið er laust nú þegar og upphaf starfs er samkomulagsatriði.
Sláturhúsið menningarmiðstöð er miðstöð sviðslista á Austurlandi og leggur áherslu áverkefni sem tengjast sviðslistum (performing arts) á einn eða annan hátt. Við leggjum ríka áherslu á fræðslustarf fyrir börn og ungmenni með bæði námskeiðum og þáttökuverkefnum.Sláturhúsið framleiðir eigin sviðslistaverk í samstarfi við sjálfstæða leikhópa ásamt því að vera vettvangur fyrir sýningar, þróun verkefna, æfingaferli og rannsóknarvinnu sviðslistafólks.
Sláturhúsið hefur jafnframt frábæra sýningaraðstöðu fyrir myndlist og árlega setjum við upp 6-8 sýningar. Sláturhúsið er einnig vattvangur fyrir tónlist og tónlistarfólk með bæði tónleikaaðstöðu og aðstöðu til æfinga.
Á komandi starfsári ætlum við að að efla og móta enn betur verkefni miðstöðvarinnar, meðal annars listamannadvölina og þróunarstarf innan sviðslista. Viðkomandi starfsmaður mun taka þátt í þeirri stefnumótun og því æskilegt að viðkomandi hafi einhverja reynslu af slíkri vinnu.
Gera má ráð fyrir að vinnutími sé stundum á kvöldin eða um helgar.
Næsti yfirmaður er forstöðumaður Sláturhússins menningarmiðstöðvar
-
Umsjón með fræðslustarfi Sláturhússins.
-
Gerð fræðsluefnis um sýningar Sláturhússins í samstarfi við listafólk.
-
Móttaka skólahópa og annarra hópa.
-
Umsjón með kynningarmálum Sláturhússins, þar með talið vef og samfélagmiðlum í samstarfi við forstöðumann.
-
Undirbúningur og hugmyndavinna í tengslum við BRAS, menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi og seta í stýrihópi hátíðarinnar fyrir hönd Sláturhússins.
-
Aðstoð og stuðningur við uppsetningu sýninga, undirbúning viðburða og önnur tilfallandi verkefni í Sláturhúsinu.
-
Þáttaka í þróun og mótun verkefna Sláturhússins.
-
Aðstoð við listafólk í vinnustofudvöl.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg s.s. í listgreinum, verkefnastjórn eða menningarmiðlun.
- Reynsla af vinnu við lista- og eða menningarstofnanir er æskileg.
- Reynsla af störfum með börnum og ungmennum.
-
Reynsla af kynningarmálum er æskileg.
- Gott vald á íslensku og ensku talmáli er æskilegt.
-
Góð almenn tölvukunnátta.
-
Nákvæmni, samviskusemi og góð samskiptafærni.
-
Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði.
-
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára.
-
Hreint sakavottorð.
Íslenska
Enska

