Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélagið Hornafjörður

Verkefnastjóri ferðamála hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar

Menningarmiðstöðin auglýsir eftir ævintýragjörnum, ferðaglöðum og skipulögðum einstaklingi til liðs við þverfaglegt teymi sitt.

Verkefnastjóri ferðamála er nýtt starf hjá sveitarfélaginu og mun þróast með nýjum starfsmanni. Helstu verkefni eru umsjón með upplýsingamiðstöð sveitarfélagsins og samskipti við hagaðila. Verkefnastjóri ber ábyrgð á framsetningu upplýsinga og þjónustu við ferðamenn sem og móttöku þeirra.

Verkefnastjóri hefur aðsetur í Gömlubúð og sinnir starfsemi hússins, sem enn er í mótun, ásamt verkefnastjóra markaðsmála og viðburða. Um fullt starf er að ræða en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til 8. apríl 2025.

Umsóknir eiga að berast í tölvupósti á [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg umsjón Gömlubúðar og gesta hennar
  • Frumkvæði að þróun upplýsingamiðlunar og þjónustu við ferðamenn
  • Samantekt og miðlun upplýsinga um ferðamál í sveitarfélaginu
  • Samskipti við hagaðila ferðaþjónustu í sveitarfélaginu
  • Þátttaka í viðburðum og barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar
  • Önnur verkefni sem viðkomandi er falið
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærilegt
  • Þekking og reynsla sem nýtist í starfi
  • Háskólanám sem nýtist í starfi er kostur
  • Sjálfstæði, vönduð vinnubrögð og tölvukunnátta
  • Góðir skipulagshæfileikar og lipurð í samskiptum
  • Góð tök á íslensku og ensku í ræðu og riti, fleiri tungumál kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
Auglýsing birt21. mars 2025
Umsóknarfrestur8. apríl 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Heppuvegur 1, 780 Höfn í Hornafirði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar