Verkefnastjóri á þróunarsviði
Reitir leita að áhugasömum og drífandi aðila til að verkefnastýra þróunar- og umbreytingarverkefnum innan eignasafns Reita. Viðkomandi verður hluti af þróunarsviði og heyrir undir framkvæmdastjóra sviðsins. Hlutverk þróunarsviðs er að stýra fasteignaþróunarverkefnum og styðja við vöxt og viðgang félagsins sem leiðandi afl í uppbyggingu innviða samfélagsins. Meðal helstu þróunarverkefna félagsins eru Kringlureitur, Korputún, Hyatt Centric á Laugavegi 176 og Loftleiðasvæðið.
-
Verkefnastýring þróunar- og umbreytingarverkefna
-
Áætlanagerð, umsýsla og umsjón með fjármálum verkefna
-
Greiningar og mat á hagkvæmni fjárfestinga
-
Náið samstarf með framkvæmdastjóra þróunar og öðrum hagaðilum
-
Þátttaka í mótun verkefna ásamt hönnun og undirbúningi framkvæmda
-
Umsjón og eftirlit með skipulagsvinnu og framkvæmdum
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. byggingarverkfræði, byggingartæknifræði, arkitektúr, skipulagsfræði eða önnur sambærileg menntun
-
Reynsla af verkefnastjórnun og áætlanagerð er kostur
-
Góð samskipta- og samstarfshæfni
-
Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð
-
Jákvætt viðhorf og metnaður til að vaxa í starfi