
Seyðisfjarðarskóli
Seyðisfjarðarskóli skiptist í grunnskóladeild, leikskóladeild og listadeild.
Sýn skólans er sú að í hverjum nemenda búi fjársjóður. Hlutverk skólans er að þroska þann sjóð, mennta ábyrga, hæfa og skapandi einstaklinga í samvinnu við heimilin og nánu samstarfi deildanna, í samræmi við aðalnámskrá leik-og grunnskóla, lög og reglugerðir.
Í nýrri skólastefnu kemur fram að leiðarljós starfsins sé góð samvinna, lýðræði og jafnrétti og jafnramt að sköpunarkraftur, sjálfbærni, fjölbreytileiki og gagnrýnin hugsun einkenni skólastarf í öllum deildum.

Verk -og listgreinakennari
List- og verkgreinakennara vantar til starfa við Seyðisfjarðarskóla til að kenna leiklist, smíði, myndmennt og textílmennt. Auglýst er eftir kennurum í 30 - 100% starf frá og með 1. ágúst 2026. Um framtíðarstarf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda samkvæmt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla í samráði við skólastjóra og aðra kennara með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
- Fylgjast með velferð nemenda, hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar.
- Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennsluréttindi.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Skipulagshæfni
Auglýsing birt26. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurgata 4, 710 Seyðisfjörður
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Hjallastefnuleikskólinn Vífilsholt (Litlu Ásar) - Leikskólakennari/kennari
Hjallastefnan

Deildarstjóri á deild yngstu barna
Núpur

Dönskukennari í Hagaskóla með umsjón
Hagaskóli

Lindaskóli óskar eftir dönskukennara skólaárið 2026-2027
Lindaskóli

Deildarstjóri í Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús

Verkefnastjóri frístundar í Krikaskóla
Krikaskóli

Listrænn ráðgjafi
Sinfóníuhljómsveit Íslands

Rimaskóli leitar að kennara á yngsta stig frá ágúst 2026
Rimaskóli

Leikskólakennari óskast í leikskólann Núp
Núpur

Kennarar óskast á Hellu
Grunnskólinn á Hellu

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Kennari í stærðfræði og náttúrugreinum frá 1. ágúst 2026
Fellaskóli