Norconsult Ísland ehf.
Norconsult Ísland ehf.
Norconsult Ísland ehf.

Verk- eða Tæknifræðingur óskast í Iðnaðardeild

Norconsult leitar að metnaðarfullum verkfræðingi eða tæknifræðingi í hönnun á stjórnkerfum í iðnaðardeild. Verkefni deildarinnar felast meðal annars í ráðgjöf, hönnun og forritun á stjórnkerfum fyrir viðskiptavini á Íslandi. Spennandi tækifæri fyrir metnaðarfulla einstaklinga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgjöf í tengslum við stjórnkerfi
  • Hönnun, forritun og viðhald á stjórnkerfum
  • Forritun á gagnasöfnun
  • Gerð stýrirásateikninga

Menntunar og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í Verkfræði eða Tæknifræði
  • Reynsla af vinnu við stjórnkerfi er kostur
  • Þekking á gagnagrunnum er kostur
  • Þekking á stýrirásateikningum er kostur
  • Góð tölvukunnátta
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hæfni í samskiptum og samvinnu í teymum

Fríðindi í starfi

Hreyfistyrkur, samgöngustyrkur, símastyrkur ásamt símaáskrift og heimanettengingu svo eitthvað sé nefnt. Fyrirtækið er að megninu í eigu starfsmanna sinna og býðst öllum starfsmönnum árleg fríðindi til hlutabréfakaupa í fyrirtækinu á sérkjörum. Sveigjanlegur vinnutími í vinalegu umhverfi og í hjarta Kópavogs.

Norconsult á Íslandi er partur af alþjóðlegu ráðgjafafyrirtæki og jafnframt stærstu verkfræðistofu Noregs með yfir 6500 starfsmenn þar sem verkefnin spanna frá skipulagi innviða til verkfræði og arkitektúrs. Á Íslandi starfa um 80 manns við verkfræði og arkitektúr í gegnum dótturfélög Norconsult við innlend og erlend verkefni víðs vegar um heiminn.

Nánari upplýsingar um starfið veitir: Ketill Heiðar Guðmundsson, Ketill.Gudmundsson@norconsult.com

Auglýsing birt5. september 2024
Umsóknarfrestur26. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Hlíðasmári 4, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar