
Ölgerðin
Lykillinn að velgengni fyrirtækja er að hluta fólginn í mannauði þeirra.
Við drögum að og höldum hæfasta starfsfólkinu með hvetjandi fyrirtækjamenningu án fordóma og með áherslu á jafna möguleika. Hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur af skapandi og framsæknu fólki. Sjálfbærni er samofin menningu, við eyðum allri sóun og nýtum okkur stafræna tækni til umbóta sem skapar okkur samkeppnisforskot.
Við sinnum hverjum viðskiptavini og birgja eins og hann væri okkar eini og setjum aðeins þau vörumerki á markað sem eru, eða hafa möguleika á að vera, fremst í sínum flokki.
Við erum keppnis, gerum hlutina fyrr og betur en aðrir og leggjum metnað í að skapa eftirsóttasta vinnustað landsins.
Markmið Ölgerðarinnar er að hafa yfir að ráða vel menntuðu, hæfu og áhugasömu starfsfólki sem sameiginlega skapar metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi. Starfsfólk Ölgerðarinnar stefnir samstíga í átt að framtíðarsýn fyrirtækisins, að verða fyrsta val viðskiptavina og neytenda. Fjölbreyttur bakgrunnur starfsmanna gerir vinnustaðinn skemmtilegan.

Vélstjóri óskast á framleiðslusvið
Við erum að leita af duglegri manneskju með brennandi áhuga á vélbúnaði og sjálfvirkni. Manneskju sem sýnir frumkvæði og getur tekið sjálfstæðar ákvarðanir. Erum að bjóða fjölbreytt starf þar sem allir þættir vélstjóranámsins eru nýttir.
Vinnutíminn er frá 7:30-15:30 en ca fjórða hver vika er fjögra daga kvöldvaktarvika.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðhald og eftirlit á framleiðslubúnaði fyrirtækisins
- Uppsetning á nýjum framleiðslutækjum og koma þeim í rekstur.
- Smíðavinna, ryðfrítt stál.
- Ýmis tilfallandi verk tengd véla- og tækjabúnaði Ölgerðarinnar
Auglýsing birt5. janúar 2026
Umsóknarfrestur26. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Grjótháls 7-11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Bifvélavirki fyrir Max1/Vélaland
MAX1 | VÉLALAND

Software Engineer
Ripple

Þjónustumaður á verkstæði
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf

Fjölbreytt sumarstörf hjá Orku náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka

Vélfræðingur (Service Engineer)
GEA Iceland ehf.

Verslunarstarf
Barki EHF

Reyndir viðgerðarmenn
Vélaverkstæði Þóris ehf.

Viltu vinna við veitukerfi okkar á Vesturlandi?
Veitur

Orkubú Vestfjarða - Ísafjörður - Vélfræðingur
Orkubú Vestfjarða ohf

Orkubú Vestfjarða - Patreksfjörður - Vélfræðingur.
Orkubú Vestfjarða ohf

Vélgæslumaður – Eftirlit og viðhald búnaðar í fyrirtæki okkar á Akureyri
TDK Foil Iceland ehf