Steypustöðin
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík. Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Vík í Mýrdal ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum. Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi. Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn
Steypustöðin

Vélamenn í malarnámur

Steypustöðin leitar að sterkum og nákvæmum vélamanni í fullt starf. Ef þú hefur gaman stjórna vinnuvélum og vinnur vel undir álagi þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.

Unnið er á stórvirkum vinnuvélum við mokstur í mölunarsamstæður á hjólaskóflum og beltagröfum. Gott er ef viðkomandi hefur reynslu af malarvinnslu og getur unnið sjálfstætt.

Vinnutími er 07:30 til 18:00 alla virka daga með möguleika á yfirvinnu. Starfsemin fer að mestu fram í námunum Hólbrú og Vatnsskarði.

Við hvetjum öll kyn til að sækja um.

Kostur er að viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
Mokstur í brjóta og hörpur
Stjórnun stórra vinnuvéla
Mokstur á vörubíla
Aðstoð við viðhald á framleiðslutækjum
Menntunar- og hæfniskröfur
Stóru vinnuvélaréttindin, þ.e. hjólaskóflu, beltagröfu og jarðýtu
Meirapróf er kostur
Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg en ekki nauðsyn
Hæfni í mannlegum samskiptum
Samviskusemi
Íslensku- og/eða enskukunnátta æskileg
Metnaður og áhugi fyrir efnisvinnslu
Fríðindi í starfi
Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
Líkamsræktarstyrkur
Námskeið og fræðsla
Fjölbreytt verkefni
Hádegismatur
Auglýsing stofnuð24. maí 2023
Umsóknarfrestur11. júní 2023
Starfstegund
Staðsetning
Malarhöfði 10, 110 Reykjavík
Hæfni
PathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Vinnuvélaréttindi
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.