
SIGLÓVEITINGAR
Veitingafyrirtæki á Siglufirði með umsjón með Sigló Hóteli, Rauðku, Hannes boy og Torgið.

Veitingastjóri óskast
Við leitum að metnaðarfullum og þjónustulunduðum veitingastjóra til að leiða veitingarekstur hjá Siglóveitingum. Um er að ræða spennandi og fjölbreytt starf þar sem áhersla er lögð á framúrskarandi þjónustu, fagmennsku og gott samstarf við starfsfólk og stjórnendur. Siglóveitingar sjá um og reka veitingaþjónustu á Sigló Hóteli, Rauðku, Hannes boy og Torginu. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni:
- Dagleg stjórnun og skipulag veitingastarfs
- Umsjón með þjónustu og gæðum í matsal og bar
- Starfsmannahald, þjálfun og leiðsögn
- Ábyrgð á vaktaplani og vinnuferlum
- Samskipti við gesti og úrlausn mála eftir þörfum
- Vinna að því að skapa jákvæða upplifun fyrir gesti
Menntunar- og hæfniskröfur
Hæfniskröfur:
- Reynsla af veitingastjórn eða sambærilegu starfi
- Góð leiðtogahæfni og skipulagshæfileikar
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
- Reynsla af hótel- eða veitingarekstri er kostur
- Gott vald á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
Við bjóðum:
- Áhugavert og fjölbreytt starf
- Tækifæri til að vaxa og öðlast fjölþætta reynslu
- Tækifæri til að hafa áhrif á þróun og gæði þjónustu
- Laun samkvæmt samkomulagi
- Húsnæði í boði gegn leigu
Auglýsing birt21. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Gránugata 19, 580 Siglufjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (2)

