Intellecta
Um Intellecta:
Intellecta var stofnað árið 2000 og starfar á tveimur sviðum: ráðgjöf og ráðningum. Við vinnum með stjórnum og æðstu stjórnendum við að bæta rekstur og auka verðmæti fyrirtækja og stofnana. Ráðgjafar okkar hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu.
👉 Ráðningarsvið Intellecta vinnur með stjórnum og æðstu stjórnendum að ráðningum sérfræðinga og stjórnenda. Jafnframt sinna ráðgjafar okkar ráðgjöf til stjórnenda, atvinnuleitenda og starfslokaráðgjöf.
👉 Ráðgjafarsvið Intellecta sinnir verkefnum s.s. á sviði upplýsingatækni, stefnumótunar og stjórnunar auk þess sem kjarakönnun Intellecta hefur veitt stjórnum og stjórnendum góða innsýn inn í þróun launa á markaði.
Á næstunni flytjum við í nýtt og glæsilegt húsnæði að Höfðabakka 9, þar sem boðið verður upp á fyrsta flokks vinnuaðstöðu. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.intellecta.is.
Vefstjóri (Wordpress/Woocommerce)
Traust 30 manna þjónustudrifið fyrirtæki í ferðaþjónustu óskar eftir að ráða vefstjóra. Við leitum að sjálfstæðum einstakling til að sjá um vefþróun fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Viðhalda og þróa vefsíðu fyrirtækisins
- Tryggja öryggi vefsíðunnar og stjórna efni í samræmi við SEO stefnu
- Hámarka árangur síðunnar fyrir leitarvélar
- Önnur verkefni tengd tölvurekstri og þjónustu við notendur
Menntunar- og hæfniskröfur:
- B.Sc. í tölvunarfræði eða sambærileg menntun og/eða reynsla
- Marktæk reynsla af því að þróa og viðhalda vefsíðum
- Þekking og reynsla af notkun WordPress og WooCommerce skilyrði
- Þekking og reynsla af leitarvélabestun
- Reynsla af vinnu í tengslum við Bókun.io er kostur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og útsjónarsemi
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og þjónustulund
- Góð enskukunnátta, í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Birna Dís Bergsdóttir ([email protected]) og Torfi Markússon ([email protected]) í síma 511-1225.
Auglýsing birt23. janúar 2025
Umsóknarfrestur31. janúar 2025
Tungumálahæfni
Íslenska
Mjög góðNauðsyn
Enska
Mjög góðNauðsyn
Staðsetning
Síðumúli 5, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiLeitarvélabestun (SEO)Mannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðTölvunarfræðingurVefsíðugerðWooCommerceWordPressÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)