

Vefstjóri
Isavia leitar að öflugum og metnaðarfullum vefstjóra til að hafa umsjón með vefjum Isavia, Keflavíkurflugvallar og dótturfélaga. Viðkomandi þarf að hafa ástríðu og óþrjótandi áhuga á því að bæta og þróa vefi og vefviðmót, því starfið felur í sér að hafa umsjón með uppbyggingu, framþróun og viðhaldi vefja og sjálfvirknilausna einingarinnar. Leitað er að einstaklingi sem getur greint ferðalag viðskiptavina á vefsíðum félagsins til að hámarka notendaupplifun og séð til þess að vefirnir séu notendavænir, vel hannaðir og endurspegli stefnu félagsins. Vefstjóri ber enn fremur ábyrgð á efnisstefnu, ritstjórn og framsetningu efnis í vefumhverfi og er í nánum samskiptum við þá sem að vefnum koma.
Starfið er spennandi og krefjandi og starfsumhverfið er líflegt, alþjóðlegt og síkvikt.