Icelandia
Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Undir vörumerki Icelandia starfa:
Activity Iceland,
Almenningsvagnar Kynnisferða,
Bílaleiga Kynnisferða – Enterprise Rent-A-Car,
Dive.is,
Flybus,
Garðaklettur,
Hópbifreiðar Kynnisferða,
Icelandic Mountain Guides,
Reykjavik Excursions
Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Activity Iceland hefur boðið upp á sérferðir á breyttum bílum og lúxusferðir.
Almenningsvagnar Kynnisferða eiga 58 strætisvagna og sjá um viðhald og rekstur þeirra. Félagið sinnir akstri á 11 leiðum fyrir Strætó bs á höfuðborgarsvæðinu.
Enterprise Rent-A-Car er stærsta bílaleiga í heimi og starfar hér á landi undir vörumerki Icelandia. Félagið er með um 1.000 bíla í rekstri í langtíma- og skammtímaleigu.
Dive.is sérhæfir sig í köfunar- og snorklferðum í Silfru auk þess að vera fimm stjörnu PADI köfunarskóli.
Flybus býður upp á akstur á milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Garðaklettur á og sér um viðhald og rekstur á dráttarbílum ásamt því að sinna vörubílaakstri.
Hópbifreiðar Kynnisferða heldur utan um rekstur hópbifreiða af öllum stærðum.
Icelandic Mountain Guides hafa verið í fararbroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja á sviði afþreyingar, göngu- og fjallaferðum og bjóða meðal annars upp á fjórhjólaferðir, jöklaferðir og styttri og lengri gönguferðir.
Reykjavik Excursions er eitt elsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og býður upp á dagsferðir í Bláa Lónið, Gullna hringinn, Jökulsárlón, norðurljósa ferðir og margt fleira.
Icelandia leitar að áhugasömu starfsfólki sem nýtir þekkingu og reynslu í daglegum störfum í jákvæðu starfsumhverfi.
Fyrirtækið er ISO 14001 vottað og er það markmið okkar að nálgast náttúruna með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
Vefstjóri
Viltu taka þátt í að móta stafræna framtíð leiðandi ferðaþjónustufyrirtækis á Íslandi? Icelandia leitar að reynslumiklum og skapandi vefstjóra til að stýra vefmálum okkar og taka þátt í að þróa stafrænar lausnir sem efla ímynd fyrirtækisins bæði innanlands og á alþjóðavísu. Ef þú hefur gott auga fyrir UX/UI, tæknilega þekkingu og góðan skilning á vefmálum og vefmælingatólum, þá gæti þetta verið tækifærið fyrir þig!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með öllum vefsíðum fyrirtækisins, þróun og viðhaldi þeirra
- Innleiðing stafrænna lausna í samstarfi við markaðsteymi og önnur svið
- Greiningar á þörfum viðskiptavina til að hámarka notendaupplifun og árangur
- Umsjón með mælikvörðum vefmála og rekjanleika herferða
- Samskipti við samstarfsaðila og stofur
- Hugmyndavinna, efnisinnsetning og uppsetning herferða
- Fjölbreytt verkefni markaðsdeildar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af vefstjórn eða stafrænni vöruþróun
- Þekking á UX/UI og vefmælingatólum
- Góð færni í framsetningu á efni fyrir vef og skipulagningu vefumhverfis
- Brennandi áhugi á vefmálum og á notendavænni þjónustu
- Góð skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð hugsun
- Þekking á Javascript, HTML, CSS og API vefþjónustum er kostur
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti
- Góðir samskiptahæfileikar og metnaður til að ná árangri
Fríðindi í starfi
Við bjóðum upp á:
- Fjölbreytt og skapandi verkefni í ört vaxandi vinnuumhverfi
- Frábæra vinnuaðstöðu og sveigjanleika
- Líkamsræktarstyrk og sálfræðistyrk
- Möguleika á þróun í starfi
Auglýsing birt31. október 2024
Umsóknarfrestur17. nóvember 2024
Tungumálahæfni
Íslenska
FramúrskarandiNauðsyn
Enska
Mjög góðNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar