Xprent- hönnun og merkingar ehf
Xprent- hönnun og merkingar ehf
Xprent- hönnun og merkingar ehf

Vanur starfskraftur í skiltagerð

Við leitum að öflugum starfskrafti í skiltagerð

Xprent óskar eftir að ráða vanann og handlaginn starfsmann til starfa í fjölbreytt og spennandi framtíðarstarf.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á sviði skiltagerðar og merkinga, þar á meðal vinnu við:

  • almenna skiltagerð
  • bíla- og trukkamerkingar
  • undirbúning, frágang, upplímingar og uppsetningar
  • önnur tilfallandi verkefni

Um er að ræða starf sem fer fram bæði innan- og utandyra, þar sem reynir á sjálfstæði, vandvirkni og góða verkvitund. Verkefnin eru fjölbreytt og gefa réttum aðila tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.

Við leitum að aðila sem:

  • hefur reynslu af merkingum, skiltagerð eða sambærilegum störfum
  • er handlaginn, úrræðagóður og vandvirkur
  • getur unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð á sínum verkefnum
  • hefur jákvætt viðmót og metnað í vinnubrögðum
  • hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í skapandi og praktísku umhverfi

Við bjóðum:

  • fjölbreytt og lifandi starf
  • góðan vinnustað og skemmtilegt starfsumhverfi
  • tækifæri til þróunar og vaxtar í starfi
  • góð laun fyrir réttan aðila
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Upplíming merkinga hjá fyrirtækjum og í heimahúsum.
  • Merkja bíla/trukka/vagna og aðrar vélar.
  • Prenta, plasta og plotta.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hreint sakavottorð
  • Engin menntun nauðsynleg
Auglýsing birt28. maí 2026
Umsóknarfrestur28. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sundaborg 3-5 3R, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Reyklaus
Starfsgreinar
Starfsmerkingar