

Vaktstjóri - Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi
Vaktstjóri óskast við íþróttamiðstöðina í Borgarnesi. Um er að ræða 100% starf þar sem unnið er í vaktavinnu og unnið þriðja hverja helgi.
Vaktstjóri er yfirmaður á vaktinni og hefur umsjón með daglegum störfum starfsfólks og stýrir verkskiptingu. Vaktstjóri er leiðbeinandi og veitir starfsfólki leiðsögn í starfi. Vaktstjóri stuðlar að góðum samskiptum og upplýsingaflæði á vinnustaðnum.
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli. Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi.
Í starfsmannamálum eru gildin virðing, áreiðanleiki og metnaður höfð að leiðarljósi.
· Umsjón með daglegum störfum innan íþróttamiðstöðvarinnar
· Eftirlit með öryggi sundgesta í og við laug
· Afgreiðsla, önnur þjónusta og þrif
· Hefur eftirlit með afgreiðslu og aðgangskerfi ásamt skiptimynt og uppgjöri
· Sér um innkaup í samráði við forstöðumann
· Skipuleggur og hefur yfirsýn með verkaskiptingu innan vaktar sem og afleysingar vegna fjarvista/veikinda
· Aðstoð við skólabörn og unglinga, fyrir og eftir kennslu og æfingar
· Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
· Reynsla af verk- og starfsmannastjórnun
· Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum
· Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
· Almenn tölvukunnátta
· Góð íslenskukunnátta
· Umsækjendur þurfa að standast árlega sundpróf laugarvarða
· Hreint sakavottorð
Íslenska










