

Vaktstjóri í sjóböðin í Hvammsvík
Vilt þú taka þátt í að skapa einstaka upplifun í Hvammsvík í Hvalfirði?
(English below)
Við leitum að Vaktstjóra í fullt starf!
Unnið er að uppbyggingu ferðaþjónustukjarna í Hvammsvík í Hvalfirði og nú leitum við að krafmiklum og drífandi Vaktstjóra til starfa við sjóböðin okkar sem opnuðu síðasta sumar. Böðin og veitingaþjónusta þeim tengd bjóða gestum uppá einstaka upplifun og tengingu við magnaða náttúru staðarins.
Við leitum að einstakling í stöðu Vaktstjóra sem ber ábyrgð á starfsemi sjóbaðanna á sinni vakt. Gert er ráð fyrir að Vaktstjóri skipuleggi vinnu starfsmanna á staðnum og sé með góða yfirsýn yfir starfsemina hverju sinni. Vaktstjóri tekur einnig þátt í öllum hliðum upplifunar gesta, svo sem móttöku gesta, afgreiðslu á bar, vinnu í eldhúsi, uppvaski, þjónustu á veitingastað, léttvæg þrif og vinnu á útisvæði. Vaktstjóri ber einnig ábyrgð á innkaupum, öryggi starfsmanna og gesta á sinni vakt og að boðið sé upp á frábæra upplifun.
Um er að ræða vaktavinnu á 12 tíma vöktum í 2-2-3 kerfi á einstökum stað í 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Þetta er frábært tækifæri til að ganga til liðs við stjórnunarteymið í nýju og spennandi fyrirtæki. Ef þú býrð yfir drifkrafti, frábærum samskiptahæfileikum, reynslu af mannaforráðum og góðri enskukunnáttu langar okkur að heyra frá þér! Önnur tungumálakunnátta og reynsla af skyndihjálp er einnig mikill kostur. Umsækjendur verða að hafa náð 20 ára aldri.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Hákon (hakon@hvammsvik.com). Við biðjum umsækjendur vinsamlegast að láta ferilskrá og kynningarbréf fylgja umsókn.
-------------------------------------------------------------------------------------------------
Do you want to take part in creating a unique experience in Hvammsvík in Hvalfjörður?
We are hiring a Duty Manager in a full time role!
We are looking for a motivated and driven Duty Manager to join the team at Hvammsvík Hot Springs – a new nature bath experience in the vicinity of Reykjavik, that opened last summer. The baths offer guests a unique experience and direct connection with nature.
We are looking for a Duty Manager which is responsible for the Hot Springs operation on their respective shifts. The Duty Manager is responsible for organising the daily duties of the staff on their shift and has a good oversight of the operation each time. The Duty Manager also partakes all duties on shift including reception, bar service, kitchen, back of house, waiting, daily cleaning and work at our outside area. The Duty Manager is furthermore responsible for ordering supplies, the safeguarding of employees and guests on site and that we are offering a fantastic experience to all guests.
Work is on 12 hour shifts in a 2-2-3 pattern at a unique location, 45 minutes' drive from Reykjavík.
This is a great opportunity to join the management team of a new and exciting business. If you are driven, a great communicator, have experience in managing people and are fluent in English, we would love to hear from you! Other language skills and first aid experience is also an advantage. Applicants must have reached at least 20 years of age.
More information on the roles can be provided by contacting Hákon on hakon@hvammsvik.com. We ask applicants to ensure a CV and cover letter accompanies the application.











