Bari
Bari
Bari

Vaktstjóri (Front of House) óskast á Bari.

Bari Reykjavík leitar að reynslumiklum vaktstjóra í sal til liðs við okkur.

Bari er vínbar og veitingastaður í hjarta Reykjavíkur þar sem lögð er áhersla á vandaða smárétti, góð vín og persónulega þjónustu í hlýlegu og metnaðarfullu umhverfi.

Við leitum að einstaklingi með framúrskarandi þjónustulund og góða reynslu af þjónustustörfum á veitingastað. Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður, skipulagður og geta tekið ábyrgð á þjónustunni á sinni vakt. Á rólegri dögum sér vaktstjóri um rekstur salarins sjálfstætt en á annasamari kvöldum leiðir hann þjónustuteymið og tryggir að gestir fái framúrskarandi upplifun.

Þekking á vínum og áhugi á vínmenningu er mikilvægur hluti starfsins.

Um er að ræða tímabundið starf til að byrja með, með góðum möguleikum á fastráðningu fyrir réttan aðila.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita framúrskarandi þjónustu.
  • Taka á móti gestum og leiðbeina um mat, vín og aðra drykki.
  • Bera ábyrgð á þjónustunni á eigin vakt.
  • Tryggja gott flæði og fagleg vinnubrögð í sal.
  • Sjá um opnun og lokun þegar við á.
  • Styðja og leiða þjónustuteymið á vakt.
  • Vinna náið með eldhúsi og eigendum að því að tryggja framúrskarandi upplifun gesta.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af þjónustustörfum á veitingastað er skilyrði.
  • Reynsla af ábyrgðarhlutverki eða vaktstjórn er mikill kostur.
  • Góð þekking á vínum eða mikill áhugi á að tileinka sér þá þekkingu.
  • Framúrskarandi þjónustulund.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Hæfni til að vinna undir álagi.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði.
Auglýsing birt10. júlí 2026
Umsóknarfrestur31. júlí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Pósthússtræti 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar