

Vaktstjóri farþegaaksturs
Við leitum að metnaðarfullum og þjónustumiðuðum vaktstjóra til starfa við farþegaakstur á Keflavíkurflugvelli.
Deild farþegaaksturs sér um akstur flugfarþega á athafnasvæði flugvallarins, þar á meðal akstur með rútum og þjónustu við farþega með skerta hreyfigetu. Starfsemin er mikilvægur hluti af heildarflæði farþega um flugvöllinn og krefst náins samstarfs við aðrar einingar innan Isavia. Unnið er í vaktakerfi í lifandi starfsumhverfi þar sem öryggi, þjónustugæði og skilvirkni eru í fyrirrúmi.
Í starfinu felst dagleg stjórnun vaktarinnar og þátttaka í þeirri þjónustu sem deildin sinnir. Vaktstjóri gegnir lykilhlutverki í að tryggja öruggt og skilvirkt flæði farþega og að verklag og gæðakröfur séu virtar í daglegum rekstri. Vaktstjóri vinnur einnig náið með starfsfólki og deildarstjóra að því að skapa jákvætt og árangursríkt vinnuumhverfi.
Um fullt starf er að ræða og unnið á dagvöktum í 5-5-4 vaktakerfinu.
Helstu verkefni
- Daglegt skipulag og mönnun
- Tryggja að verklagi í farþegaakstri sé fylgt
- Yfirfara tímaskráningar í tímaskráningakerfi
- Umsjón með tækjabúnaði og daglegu viðhaldi í samráði við deildarstjóra
- Farþegaakstur, þ.m.t. akstur með farþega í hjólastólalyftu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Próf á hópferðabifreið (D) kostur
- Góð samskipta- og samvinnuhæfni
- Stjórnunarreynsla æskileg
- Reynsla af farþegaflutningum eða sambærilegum störfum kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Önnur aukin ökuréttindi kostur
Hvað býðst þér
- Ábyrgðarfullt og fjölbreytt starf í lifandi umhverfi
- Tækifæri til að þróa þig í leiðtogahlutverki
- Öflugt teymi og gott starfsumhverfi
- Starf á einum stærsta vinnustað landsins
Starfsstöð: Keflavíkurflugvöllur
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Guðbergsson, deildarstjóri farþegaflutninga, [email protected]
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Íslenska
Enska










