Ofar
Ofar
Ofar

Útkeyrsla og lager

Ofar leitar að öflugum einstakling til að sinna útkeyrslu og skemmtilegum verkefnum á lagernum okkar sem er staðsettur á Köllunarklettsvegi 8. Við erum að leita að aðila sem hefur metnað til að fara fram úr væntingum viðskiptavina.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Útkeyrsla

  • Móttaka, tiltekt og afhending á vörum

  • Skráning

  • Önnur hefðbundin lagerstörf

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Bílpróf

  • Jákvæðni og framúrskarandi þjónustulund

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Góð tölvufærni

  • Lyftarapróf er kostur

  • Meirapróf er kostur

  • Reynsla af útkeyrslu og lagerstörfum æskileg

Vinnutími er frá kl. 08:00-17:00 alla virka daga. Óskum eftir aðila sem getur byrjað sem fyrst.

Hlutverk Ofar er að styðja við fyrirtæki, stofnanir og endursöluaðila með tölvu- og tæknibúnaði frá yfir 150 heimsþekktum vörumerkjum á borð við Lenovo, Canon, Bose og Sony. Fyrirtækið býður einnig upp á framúrskarandi úrval og þjónustu í hljóð- og myndlausnum, prentlausnum, ásamt tæknilausnum fyrir vöruhús, verslanir, veitingastaði og fleira.

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til að læra meira um vinnustaðinn.

Umsóknarfrestur er til og með 18. maí nk. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.

Auglýsing birt6. maí 2025
Umsóknarfrestur18. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Köllunarklettsvegur 8, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LagerstörfPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.ÚtkeyrslaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar