Maskína
Maskína

Úthringingar - Sveigjanlegt og gott starf!

Vantar þig sveigjanlegt og gott starf tímabundið, þar sem þú hefur tækifæri til að vinna heima hjá þér og stýra þínum vinnutíma að miklu leyti sjálf(ur)?

Rannsóknarfyrirtækið Maskína leitar að spyrlum til að sinna úthringingum í gagnaöflun fyrir markaðsrannsóknir.

Okkur vantar strax fólk í tímabundið verkefni sem hefst í október og stendur yfir í nokkrar vikur. Unnið er eftir kl.15 á virkum dögum og frá hádegi um helgar. Þetta gæti hentað vel sem aukastarf og möguleiki er á fleiri verkefnum í framhaldi fyrir rétta aðila. Eins og áður segir er vinnutíminn sveigjanlegur en kostur er ef einstaklingur getur unnið yfir daginn.

Hæfniskröfur

· Góð framkoma og samskiptahæfni

· Tölvukunnátta

· Reynsla af úthringingum er kostur

· Góð íslenskufærni skilyrði

Þar sem unnið er heiman frá er aðgangur að tölvu nauðsynlegur.

Frekari upplýsingar veitir Thelma í síma 578-0125 eða [email protected]

Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur22. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Laugavegur 25, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar