Urriðaholtsskóli
Urriðaholtsskóli
Urriðaholtsskóli

Urriðaholtsskóli auglýsir eftir háskólamenntuðum starfsmanni

Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir háskólamenntuðum starfsmanni til að taka þátt í að móta og byggja upp skólasamfélag þar sem áhersla er á skapandi starf með einstaklinginn í fyrirrúmi. Þetta skólaár eru leikskólabörn á 7 deildum frá þriggja til 5 ára en gert er ráð fyrir frekari fjölgun næsta skólaár.

Teymiskennsla er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Góð samskiptahæfni
  • Reynsla af teymisvinnu æskileg
  • Sjálfstæði, sveigjanleiki og frumkvæði
  • Vera tilbúinn að fylgja stefnu skólans, að vinna með öðrum og um leið búa yfir frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi
  • Á leikskólastigi Urriðaholtsskóla er full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrarfrí, páska- og jólafrí. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks
  • Leikskólinn er opinn frá kl 07:30-16:30 mánudaga til fimmtudaga en frá 07:30-16:00 á föstudögum
  • 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
  • Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru skipulagsdagar í leik- og grunnskólum bæjarins samræmdir
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum
  • Frítt í sund, á bókasafn Garðabæjar og á Hönnunarsafnið sem og heilsuræktarstyrkur

Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem styður enn frekar við skólastarfið.  

Auglýsing stofnuð3. maí 2024
Umsóknarfrestur19. maí 2024
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar