

Urriðaholtsskóli - atferlisfræðingur
Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir atferlisfræðingi til að sinna m.a. stuðningi og þjálfun barna á leik- og grunnskólastigi. Teymisvinna er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Unnið er út frá atferlismótandi starfsháttum og er skólinn í samstarfi við Háskóla Íslands varðandi nám í hagnýtri atferlisgreiningu. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinnir atferlisþjálfun nemenda á leik- og grunnskólastigi og vinnur undir stjórn deildarstjóra stoðþjónustu skólans
- Koma að þjálfun, stuðningi og atferlismótun barna
- Halda utan um þjálfun og daglegt starf barna
- Vinna að áætlanagerð og mati á framvindu barna í samráði við deildarstjóra og kennara
- Situr teymisfundi og sinnir foreldrasamstarfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistaranám í hagnýtri atferlisgreiningu *(staðfesting á námi fylgi umsókn)
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Reynsla af starfi í leikskóla og/eða grunnskóla æskileg
- Lipurð í samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
- Ánægja af starfi með börnum og ungmennum
*Fáist ekki starfsmaður með tilhlýðilega menntun kemur til greina að ráða annan hæfann starfsmann sem vinnur þá undir handleiðslu og stjórn deildarstjóra sérkennslu og stoðþjónustu.
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Auglýsing birt26. mars 2026
Umsóknarfrestur10. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Urriðaholtsskóli
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMetnaðurSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Mýrarhúsaskóli auglýsir þrjár stöður.
Seltjarnarnesbær

Leikskólakennari - leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Leikskólinn Naustatjörn: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Akureyri

Ísat kennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Heilsuleikskólinn Urriðaból II

Stuðningur barna í leikskólastarfi
Leikskólinn Sjáland

Stuðningsfulltrúi með börnum með sérþarfir – starf sem skiptir máli
Arnarskóli