Hagaskóli
Hagaskóli

Upplýsingatækni- og bókasafnsstarfsmaður í Hagaskóla

Hagaskóli leitar að öflugum upplýsingatækni og bókasafnsstarfsmanni til starfa.

Um er að ræða fullt starf frá 15. ágúst næstkomandi.

Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með tæplega 600 nemendur í 8.–10. bekk. Í Hagaskóla er lögð áhersla á jákvæðan skólabrag, samvinnu, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, skapandi verkefni og innleiðingu á Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Skólinn hefur tekið þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum á liðnum árum.

Starfið felur annars vegar í sér umsjón með upplýsingatækni og tæknibúnaði skólans og hins vegar þátttöku í daglegum rekstri og þróun bókasafns skólans. Við leitum að lausnamiðuðum og hugmyndaríkum einstaklingi sem hefur mikinn áhuga á tækni, þjónustu, bókum og skólastarfi. Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf auk annarra gagna er málið varðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita nemendum og starfsfólki þjónustu og stuðning vegna upplýsingatækni.
  • Hafa umsjón með tölvu- og tæknibúnaði skólans.
  • Halda utan um fartölvur, spjaldtölvur og annan nemendabúnað.
  • Annast umsýslu aðgangsheimilda nemenda og starfsfólks.
  • Veita ráðgjöf og stuðning við notkun stafrænna lausna í skólastarfi.
  • Hafa umsjón með hljóð-, ljós- og sviðsbúnaði skólans.
  • Taka þátt í daglegum rekstri bókasafns skólans.
  • Vinna að þróun bókasafns sem lifandi náms-, menningar- og samverurýmis.
  • Taka þátt í þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Mjög góð þekking og reynsla af upplýsingatækni og tæknilausnum.
  • Reynsla af umsjón og viðhaldi tölvu- og tæknibúnaðar er kostur.
  • Góð þekking á fjölbreyttum tæknibúnaði og stafrænum vinnuumhverfum.
  • Frumkvæði, faglegur metnaður og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Skipulagshæfni og hæfni til að forgangsraða verkefnum.
  • Lipurð í samskiptum og rík þjónustulund.
  • Áhugi á að starfa með unglingum og í skapandi skólasamfélagi.
  • Hugmyndaauðgi og áhugi á að þróa bókasafn skólans.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi

Heilsuræktarstyrkur

Samgöngusamningur

Sundkort

Auglýsing birt11. júní 2026
Umsóknarfrestur25. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Fornhagi 1 Hagaskóli , 107 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar