Upplýsingafulltrúi þingflokks
Þingflokkur Flokks fólksins óskar eftir að ráða upplýsingafulltrúa. Starfið felur í sér kynningu á starfsemi flokksins, fjölmiðlasamskipti, greina- og ræðuskrif, auk þess að skipuleggja og framkvæma viðburði og ferðalög þingmanna. Starfsaðstaða er á Alþingi og er um að ræða spennandi og krefjandi starf í stjórnmálum þar sem reynir á frumkvæði, skipulag og góða samskiptahæfni.
Um Flokk Fólksins:
Stjórnmálaflokkurinn Flokkur fólksins var stofnaður árið 2016. Flokkurinn fékk 13,8% atkvæða í síðustu Alþingiskosningum árið 2024 og er með 10 kjördæmakjörna þingmenn. Hugmyndafræði flokksins felst fyrst og fremst í félagshyggju, svo sem bættum velferðarmálum og auknum stuðningi við þá sem standa höllum fæti í samfélaginu.
● Samskipti við fjölmiðla og gerð fréttatilkynninga.
● Kynning á verkefnum flokksins.
● Greinaskrif og ræðuskrif.
● Aðstoð við skipulag og framkvæmd viðburða á vegum flokksins.
● Skipulag á kjördæmaviku og ferðalögum þingmanna.
● Þátttaka í öðrum sérfræðiverkefnum eftir atvikum.
● Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
● Starfsreynsla þar sem reynt hefur á textaskrif, ritstjórn, yfirlestur og miðlun efnis.
● Reynsla af fjölmiðlastörfum eða samskiptum við fjölmiðla er kostur.
● Þekking og reynsla af uppsetningu efnis á myndrænan hátt er kostur.
● Þekking og reynsla af forritum eins og Canva eða Photoshop er kostur.
● Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur
● Reynsla af notkun vefumsjónarkerfa líkt og wordpress er kostur.
● Reynsla af gerð fréttabréfa og notkun forrita líkt og mailchimp er kostur.
● Metnaður og vilji til að ná árangri.
● Skipulagsfærni, frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum, sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi.
● Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.